Kobe Bryant þarf í uppskurð 15. febrúar 2008 10:22 Kobe Bryant Nordic Photos / Getty Images
Stjörnuleikmaðurinn Kobe Bryant hjá LA Lakers hefur átt við meiðsli að stríða á fingri undanfarna daga og nú er komið í ljós að hann þarf í uppskurð vegna þessa. Hann þarf í það minnsta sex vikur til að jafna sig eftir uppskurðinn og því hefur hann tilkynnt að hann ætli að fresta uppskurðinum þangað til eftir Ólympíuleikana í Kína í sumar. Bryant er mikill keppnismaður og ætlar ekki að taka þá áhættu að missa úr sex vikur á keppnistímabilinu í NBA, en þar er Lakers liðið nú í bullandi toppbaráttu og bindur miklar vonir við úrslitakeppnina - ekki síst eftir að Spánverjinn Pau Gasol gekk í raðir liðsins. "Ég ætla að reyna að hvíla puttann eins mikið og ég get á næstu dögum og vona að ég geti spilað með þessi meiðsli áfram eftir það. Ég vil helst ekki missa úr leiki með Lakers og síðar landsliðinu og því munum við halda áfram að eiga við þessi meiðsli dag frá degi," sagði Kobe Bryant í yfirlýsingu sem birtist í LA Times. Bryant átti að vera í byrjunarliði Vesturdeildarinnar í stjörnuleiknum á sunnudaginn, en talið er líklegt að hann muni sleppa leiknum til að hvíla fingurinn. Ekki er víst að NBA deildin veiti Bryant leyfi til að sleppa leiknum, því enn er ekki búið að nefna mann í stjörnuliðið í hans stað. Vonir standa þó til að hann verði afsakaður frá leiknum þar sem formlega hefur verið tilkynnt að hann sé meiddur. Bryant skorar að meðaltali 28 stig í leik, hirðir 6 fráköst og gefur rúmar 5 stoðsendingar. Lið Lakers hefur unnið 35 leiki í deildinni og tapað aðeins 17 og lauk í gær níu leikja útivallarispu þar sem liðið vann sjö þeirra.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Japan - Ísland | Strákarnir okkar í Tókýó Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira