Sagan ekki á bandi Boston 18. maí 2008 11:15 Boston hefur enn ekki unnið útileik í úrslitakeppninni, en getur huggað sig við að hafa heimavallarrétt alla úrslitakeppnina NordcPhotos/GettyImages
Boston Celtics og Cleveland Cavaliers mætast í kvöld í hreinum úrslitaleik um sæti í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport á besta tíma, eða klukkan 19:30. Boston var með langbesta árangur allra liða í deildinni í vetur - 66 sigra og aðeins 16 töp, en hefur verið í vandræðum á útivöllum í úrslitakeppninni. Liðið vann Atlanta naumlega í fyrstu umferðinni 4-3 þar sem úrslitin réðust í oddaleik í Boston. Nú er komin upp sama staða í einvígi liðsins gegn LeBron James og félögum í Cleveland þar sem staðan er jöfn 3-3. Liðið sem hefur betur í kvöld mætir Detroit Pistons í úrslitum Austurdeildarinnar, en nokkuð er síðan Pistons kláraði einvígi sitt við Orlando 4-1 og því verða leikmenn liðsins vel hvíldir fyrir átökin gegn Boston eða Cleveland. Blaðamenn í Detroit horfa frekar til Boston sem mótherja í næstu umferð og grófu upp áhugaverða staðreynd úr sögubókunum fyrir sjötta leik Boston gegn Cleveland. Þannig hefur engu liði sem tapað hefur fyrstu fimm útileikjum sínum í úrslitakeppninni tekist að verða NBA meistari, en Boston hefur tapað fyrstu sex útileikjunum sínum eftir að það lá í Cleveland á föstudagskvöldið. Það er því ljóst að Boston-menn verða að brjóta blað í sögunni ef þeir ætla sér að landa meistaratitlinum - í það minnsta að vinna áttunda heimaleik sinn í röð í úrslitakeppninni í kvöld. Þeir geta þó huggað sig við þá staðreynd að heimaliðin hafa unnið 21 af 23 leikjum í annari umferðinni til þessa, en aðeins Lakers og Pistons hafa unnið útileik. Aðeins einu öðru einvígi í annari umferð úrslitakeppninnar er ólokið, en það klárast annað kvöld þegar New Orleans og San Antonio mætast í sjöunda leik í New Orleans. Sá leikur verður líka sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst um klukkan 00:30 eftir miðnætti.
NBA Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport HM félagsliða „farsælasta keppni í heimi“ samkvæmt Infantino Sport Dagskráin í dag: KA fer í Hafnarfjörðinn og golfið heldur áfram Sport Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Elías Már skrifar undir hjá kínversku liði Sport Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Hákon skoraði tvö í vináttuleik Sport Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira