Formúla 1

Loeb fær ekki keppa í Abu Dhabi

Michael Schumacher og Sebastian Loeb ræða málin. Loeb hefur prófað Formúlu 1 bíl og sýndi góða takta í prófunum í Barcelona.
Michael Schumacher og Sebastian Loeb ræða málin. Loeb hefur prófað Formúlu 1 bíl og sýndi góða takta í prófunum í Barcelona. Mynd: Getty Images

FIA hefur hafnað Sebastian Loeb um leyfi til að keppa í Formúlu 1 mótinu í Abu Dhabi, en Torro Rosso liðið hefur unnið að því að fá heimsmeistarann um borð í bíl sinn í lokamót ársins.

En FIA telur að Loeb uppfylli ekki þau skilyrði sem til þarf til að fá ofurskírteinið svokallaða sem Formúlu 1 ökumenn þurfa til að geta keppt. Loeb er margfaldur meistari í rallakstri og keppir um helgina í lokamótinu í heimsmeistaramótinu í Bretlandi og gæti orðið meistari. Einvígi verður á milli hans og Miko Hirvonen.

"Ég fékk ekki ofurskírteini frá FIA og fæ því ekki að keppa. Það er heldur ólíklegt að svipað tækifæri komi upp á borðið, en þar sem báðum stigamótum var raunverulega lokið, að þá var þetta kjörið. En ég græt þetta ekki og einbeiti mér í staðinn að rallmótinu um helgina", sagði Loeb.

Um aðra helgi fer fram fyrsta rallmótið í Abu Dhabi og til stóð að Loeb tæki sæti annars Torro Rosso ökumannsins, en Red Bull sem á liðið hefur stutt Loeb síðustu ár. Þetta átti að vera gjöf fyrirtækisins til Loeb fyrir allt titlanna sem hann hefur unnið í rallakstri.

"Ég mun grípa annað tækifæri til að keyra Formúlu 1 bíl ef það gefst. En það er spennandi rallkeppni framundan og jafnvel meira spennandi en kappakstur, þannig að ég er bara sáttur", sagði Loeb.

Sjá brautarlýsingu frá Abu Dhabi






Fleiri fréttir

Sjá meira


×