Allen tryggði Boston 12. sigurinn í röð 4. febrúar 2009 09:15 Ray Allen fagnar sigurkörfu sinni AP
Sex leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt þar sem hæst bar naumur sigur Boston á Philadelphia. Boston vann 100-99 sigur með þriggja stiga körfu Ray Allen þegar hálf sekúnda var til leiksloka og vann þar með tólfta leikinn í röð. Kevin Garnett var ekki með Boston annan leikinn í röð vegna flensu en Paul Pierce (29 stig) og Allen (23 stig) drógu vagninn fyrir meistarana. Andre Iguodala skoraði 22 stig fyrir Philadelphia. Cleveland vann 23. leikinn í röð á heimavelli sínum þegar liðið lagði Toronto 101-83. LeBron James skoraði 33 stig fyrir Cleveland og komst yfir 12,000 stiga múrinn í leiknum. Chris Bosh skoraði 29 stig fyrir Toronto. Denver vann góðan sigur á San Antonio á heimavelli sínum 104-96 en San Antonio liðið hvíldi reyndar Tim Duncan, Tony Parker, Manu Ginobili og Michael Finley sem eiga við smávægileg meiðsli að stríða eftir að hafa spilað leik sem fór í framlengingu kvöldið áður. Carmelo Anthony skoraði 35 stig og hirti 9 fráköst fyrir Denver en Roger Mason var með 26 stig hjá San Antonio. Houston lagði Chicago 107-100 á heimavelli þar sem Yao Ming skoraði 28 stig fyrir Houston líkt og Luol Deng hjá Chicago. New Jersey lagði Milwaukee 99-85. Vince Carter náði þrefaldri tvennu hjá New Jersey með 15 stigum, 12 stoðsendingum og 10 fráköstum og Brook Lopez var með 22 stig og 12 fráköst. Richard Jefferson skoraði 27 stig fyrir Milwaukee gegn sínum gömlu félögum. Loks vann Minnesota 116-11 sigur á Indiana á útivelli og batt þar með enda á þriggja leikja taphrinu. Danny Granger skoraði 28 stig fyrir Indiana en Randy Foye skoraði 19 stig fyrir Minnesota. Staðan í NBA deildinni
NBA Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Landsliðskona í Val Handbolti Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Sjá meira