Los Angeles Lakers er komið áfram eftir sigur á Utah í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. apríl 2009 09:00 Deron Williams var ekki alveg sáttur við Kobe Bryant í nótt. Mynd/GettyImages
Los Angeles Lakers tryggði sér sæti í undanúrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta með 107-96 sigri á Utah Jazz í fimmta leik liðanna í nótt. Lakers vann einvígið 4-1 en lið vann tvo fyrstu leikina og svo þá tvo síðustu. Sigur Lakers í nótt var öruggur og frammistaða Utah-liðsins olli örugglega stuðningsmönnum liðsins miklum vonbrigðum. Yfirburðir Lakers skrifast því frekar á dapra spilamennsku Utah en að Lakers-menn séu komnir í meistarahaminn. Kobe Bryant skoraði 31 stig í sigrinum í nótt og Lamar Odom bætti við 26 stigum og 15 fráköstum. Pau Gasol skoraði síðan 17 stig og tók 11 fráköst. Bryant var ekki alveg sáttur og óskaði eftir því að leikmennirnir sem kæmu inn af bekknum spiluðu betri vörn. „Við fáum nú viku til þess að undirbúa okkur fyrir næstu seríu. Við munum nýta hana í að tala vel saman og laga það þarf að laga," sagði Bryant. „Ég er bara tilbúinn í næstu seríu hverjir sem mótherjarnir verða," bætti Kobe við en Lakers mun mæta sigurvegaranum úr einvígi Portland og Houston en Houston er 3-1 yfir í því einvígi. „Meiðslin höfðu mikil áhrif á okkar lið og við náðum aldrei rétta taktinum," sagði Deron Williams, leikstjórnandi Utah-liðsins. „Við vorum á niðurleið fyrir úrslitakeppnina og náðum ekki að breyta því," bætti hann við. Paul Millsap var stigahæstur hjá Utah í nótt með 16 stig og þeir Andrei Kirilenko og Williams skoruðu 14 stig hvor.
NBA Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Sjá meira