Deildarmeistarar Hauka tryggðu sér í dag sæti í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta eftir stórsigur á Fram á heimvelli, 30-21, í oddaleik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni N1-deildar karla.
Leiknum var lýst beint hjá á Vísi og má lesa lýsinguna hér að neðan.
Leik lokið: Haukar - Fram 30-21
Fögnuður Hauka er mikill eftir öruggan sigur á Fram. Þetta var aldrei spurning eftir að ljóst var að Framarar tókst ekki að minnka muninn snemma í síðari hálfleik. Haukar gengu einfaldlega á lagið og kláruðu leikinn.
Mörk Hauka:
Sigurbergur Sveinsson 7/4
Einar Örn Jónsson 5/1
Elías Már Halldórsson 5
Freyr Brynjarsson 4
Andri Stefan 3
Arnar Pétursson 2
Kári Kristján Kristjánsson 2
Tjörvi Þorgeirsson 1
Gunnar Berg Viktorsson 1
Mörk Fram:
Jóhann G. Einarsson 5/2
Róbert Aron Hostert 4
Andri Berg Haraldsson 3
Guðjón Drengsson 2
Haraldur Þorvarðarson 2
Brjánn Bjarnason 1
Einar Rafn Eiðsson 1
Guðmundur Hermannsson 1
Magnús Stefánsson 1
Rúnar Kárason 1
56. mínúta: Haukar - Fram 29-18
Það er lítil spenna í þessu. Leikmenn bíða þess að leiktíminn renni út.
51. mínúta: Haukar - Fram 28-18
Rúnar Kárason hefur ekkert fengið að spila síðan í fyrri hálfleik og hann situr sem fastast á bekknum - væntanlega vegna meiðsla. Þetta er hans kveðjuleikur með Fram því hann fer til Füchse Berlin í Þýskalandi í sumar.
43. mínúta: Haukar - Fram 24-13
Það þarf ansi mikið að gerast í þessum leik ef Haukar eiga að missa þennan leik niður í tap.
38. mínúta: Haukar - Fram 21-11
Tíu marka munur. Sóknarleikur Fram er í algerum molum. Það er sóknarbrot og sóknarfeilar til skiptis auk þess sem Birkir Ívar hefur farið mikinn í markinu.
34. mínúta: Haukar - Fram 18-10
Haukar hefja síðari hálfleikinn með tveimur mörkum og hörku varnarleik. Hálfleiksræða Viggós er ekki enn farin að skila sér.
Hálfleikur: Haukar - Fram 16-10
Þrátt fyrir allt hefur verið allt annað að sjá til Framara þessar síðustu mínútur hálfleiksins en í upphafi leiks. Haukar hafa þó ekki sleppt takinu af þessum leik og leiða með sex mörkum. Framarar þurfa helst að brýna sóknarleikinn til að koma sér aftur inn í leikinn.
Mörk Hauka:
Sigurbergur Sveinsson 6/3
Elías Már Halldórsson 3
Freyr Brynjarsson 2
Einar Örn Jónsson 2/1
Andri Stefan 1
Arnar Pétursson 1
Gunnar Berg Viktorsson 1
Mörk Fram:
Guðjón Drengsson 2
Jóhann G. Einarsson 2
Andri Berg Haraldsson 2
Einar Rafn Eiðsson 1
Guðmundur Hermannsson 1
Magnús Stefánsson 1
Rúnar Kárason 1
26. mínúta: Haukar - Fram 14-8
Þetta er búið að vera mikið fjör síðustu mínúturnar. Mikið um baráttu og hart tekið á því á báða bóga. Framarar virðast vera að koma sér betur inn í leikinn en betur má ef duga skal.
21. mínúta: Haukar - Fram 12-7
Birkir Ívar tók tvö skot í viðbót og Haukar skoruðu úr hraðaupphlaupi í kjölfarið. Elías Már gerði það og var brotið á honum í leiðinni. Haraldur Þorvarðarson fékk tveggja mínútna brottvísun við litla hrifningu Viggós Sigurðssonar þjálfara Fram.
20. mínúta: Haukar - Fram 11-6
Haukar eru að taka öll völd í leiknum. Framarar eru að taka löng skot utan af velli og Birkir Ívar hefur verið duglegur að verja þau. Hann er búinn að verja alls sex skot í leiknum.
18. mínúta: Haukar - Fram 9-6
Haukarnir svara með þremur mörkum gegn einu eftir leikhléið og hafa endurheimt þriggja marka forystu sína. Það er komin smá barátta í þennan leik en Haukar eru að verjast mjög framarlega.
14. mínúta: Haukar - Fram 6-5
Framarar skora tvö í röð eftir klaufaleg mistök heimamanna í sínum sóknarleik. Aron tekur því leikhlé til að fara yfir málin.
12. mínúta: Haukar - Fram 6-3
Brjánn Bjarnason komst einn gegn Birki Ívari en lét verja frá sér. Haukar skoruðu í kjölfarið og juku muninn í þrjú mörk á ný í stað þess að Fram náði að minnka muninn í eitt. Dýrt fyrir þá bláklæddu.
9. mínúta: Haukar - Fram 5-2
Tvö hraðaupphlaupsmörk hjá Haukum í röð og þeir eru komnir þremur yfir. Sóknarleikurinn hjá Fram lítur ekki vel út.
5. mínúta: Haukar - Fram 2-1
Leikurinn fer nokkuð rólega af stað. Bæði lið að þreifa sig áfram. Haukar hafa nælt sér í tvö víti í leiknum og misnotað eitt og er það munurinn á milli liðanna.
1. mínúta: Haukar - Fram 0-0
Leikurinn er hafinn hér í Hafnarfirði. Birkir Ívar varði frá Andra Berg í fyrstu sókninni.
19.26 Mættu vera fleiri
Það verður bara að segjast alveg eins og er - það er ekkert sérstaklega vel mætt á þennan leik. Nokkur hundruð manns. Ekkert miðað við mikilvægi leiksins.
19.20 Ljósin slökkt
Ljósin hafa verið slökkt. Í kerfinu hljómar „Inní mér syngur vitleysingur" með Sigur Rós. Ekki „Bad Boys" sem eru vissulega vonbrigði. Um leið eru sýndar myndir af ýmsum sigrum Hauka í gegnum tíðina. Þetta tekur langan tíma ...
19.15 Í Haukabúningnum
„Sorrí. Ég bý í hverfinu," sagði Jónsi um leið og hann sneri sér að stuðningsmönnum Fram. Hann var þá nýbúinn að rífa sig úr yfirhöfninni og kom þá í ljós Haukatreyjan.
19.12 Jónsi tekur lagið
Hér er Jónsi Í svörtum fötum mættur með gítarinn að vopni til að kynda upp í mannskapnum. Hann gerði góða hluti í úrslitakeppninni í körfunni og því ekki að fá hann í handboltann líka?
19.00 Áhorfendur að mæta
Fjölgað hefur í áhorfendastúkunum síðustu mínúturnar nú þegar hálftími er í leik. Vonandi að það verði fullt hús í kvöld en til þess þarf þó slatta af manns enn.
18.45 Velkomin til leiks
Verið velkomin til leiks hér á Vísi þar sem leik Hauka og Fram verður lýst. Um er oddaleik liðanna í undanúrslitum að ræða en leikurinn fer fram á Ásvöllum, heimavelli deildarmeistara Hauka. Framarar komu á óvart þegar þeir unnu fyrsta leikinn í rimmunni á þessum velli en Haukar náðu að svara í sömu mynt í Safamýrinni. Það má því búast við hörkuleik hér í kvöld.
Leikurinn hefst klukkan 19.30.