Formúla 1

Vettel ræsir af stað fyrir aftan Button

Viantonio Liuzzi var í morgun færður aftast á ráslínuna vegna skipta á gírkassa eftir árekstur í gær.
Viantonio Liuzzi var í morgun færður aftast á ráslínuna vegna skipta á gírkassa eftir árekstur í gær. mynd: getty images

Ítalinn Viantonio Liuzzi hefur verið færður aftastur á ráslínu í brasilíska kappaksttrinum sem verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 15.30. Hann klessti bíl sinn í gær og þurfti að skipta um gírkassa, sem kostar hann fimm sæti á ráslínu

Þetta þýðir að rásröðin í kappakstrinum breytist frá því í tímatökunnar og tveir af keppinautunum um titilinn færast nær hvor öðrum. Sebastian Vettel færist upp um eitt sæti og er fimmtándi, en Jenson Button er fjórtándi.

Fremstur sem fyrr er Rubens Barrichello sem á góða möguleika á sigri á heimavelli eftir að hafa náð besta tíma í tímatökum í gær. Hann stefnir á sigur og 10 dýrmæt stig í baráttunni við Button, sem er 14 stigum á undan honum þegar tveimur mótum er ólokið.

Button og Vettel ræsa um miðjan hóp og því nokkur hætta á því að þeir lendi í óhappi í fyrstu beygju eftir ræsinguna. Mikill rigning var í tímatökunni í gær, en léttskýjað er á mótssvæðinu í augnablikinu en möguleiki á regnskúr um miðja keppni.

Sjá rásröð og tölfræði

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×