Formúla 1

Brotthvarf Toyota er bjarglína BMW

Búnaður BMW var seldur arabískum fjárfestum.
Búnaður BMW var seldur arabískum fjárfestum. mynd: kappakstur.is
Það að Toyota bílaframleiðandinn hefur ákveðið að draga sig út úr Formúlu 1 gæti verið bjarglína fyrir BMW liðið, sem hefur verið selt með manni og mús til arabískra fjárfesta.

BMW liðið sem verður endurskírt Sauber Ferrari var keypt af áhugasömum

fjárfestum en skorti leyfti FIA til að mæta á ráslínuna á næsta ári sem

fjórtánda lið. Í ljósi þess að Toyota hættir, þá myndast pláss fyrir

liðið. En FIA menn eru ekki sáttir við stjórn Toyota sem hafði skrifað

undir samning um að keppa til 2012.

"Toyota skrifaðu undir samning um að keppa fyrir nokkrum vikum og þarf

fyrirtækið að skýra framgöngu sína og brotthvarf liðsins sýnir að áætlun

FIA um að draga verulega úr kostnaði var réttmæt", segir í yfirlýsingu frá

FIA.

Sambandið hefur unnið ötullega að því að draga úr kostnaði og einfalda

smíði bíla með nýjum reglum. Þrír bílaframleiðendur hafa dregið sig úr

keppni, Toyota, BMW og Honda. Engu að síður stefnir í að 13 lið verði á

ráslínunni á næsta ári í stað 10 í ár. Fjögur ný lið mæta til leiks. Lotus frá Malasíu, USF1 frá Bandaríkjunum, Manor frá Englandi og Sauber

frá Sviss, ef FIA samþykkir liðið inn sem ætti að ganga snuðrulaust. Þrjú

fyrrnefndu liðin verða öll með Cosworth vélar eins og Williams.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×