Formúla 1

Alonso heillaður af Ferrari starfinu

Fernando Alonso og Felipe Massa rölta fyrir framan 17.000 áhorfendur í Valencia í gær.
Fernando Alonso og Felipe Massa rölta fyrir framan 17.000 áhorfendur í Valencia í gær. Mynd: Getty Images

Fernando Alonso frá Spáni tók þátt í sérstaktri Ferrari hátíð í Valencia á Spáni ásamt Felipe Massa. Það er í fyrstu skipti sem liðsfélagarnir koma opinberlega saman með liðinu sem þeir keppa með á næst ári.

Alonso hefur gert langtímasamning við Ferrari og þótti vel við hæfi að halda árlega uppskeruhátíð Ferrari á Spáni af því tilefni. Alonso mátti þó ekki klæðast Ferrari búningnum, þar sem hann er enn samningsbundinn Renault.

"Þetta var mikilvægur dagur fyrir mig, því ég skil núna andann sem Massa hefur lýst sig svo ánægðan með hjá Ferrari. Ég vonast til að berjast um meistaratitilinn á næsta ári ásamt Massa og við munum vinna af fagmennsku í hvívetna", sagði Alonso.

Luca Montezemolo, forseti Ferrari er mjög ánægður að fá Alonso til liðsins, en Kimi Raikkönen var keyptur undan samningnum til að koma Alonso fyrir. Raikkönen leitar nú hófanna hjá McLaren, en hann féll aldrei alveg í kramið hjá Ferrari, eftir að hafa gert þriggja ára samning við liðið. Blóðhiti Alonso ætti að henta ítalska liðinu betur.

Sjá meira um ökumenn 2010




Fleiri fréttir

Sjá meira


×