Stórsigur hjá Lakers og Boston slapp með skrekkinn Henry Birgir Gunnarsson skrifar 13. maí 2009 08:30 Kobe var sterkur í nótt. Nordic Photos/Getty Images
Los Angeles Lakers og Boston Celtics komust í lykilstöðu í einvígjum sínum í nótt er þau unnu mikilvægan sigur á andstæðingum sínum. Lakers rúllaði yfir Houston, 118-78, þar sem leik var í raun lokið afar snemma. Staðan í einvíginu 3-2 fyrir Lakers sem getur klárað einvígið á fimmtudag í Houston. Þetta var stærsta tap Houston í úrslitakeppninni frá upphafi. Kobe Bryant segir að leikmenn Lakers þurfi þó að halda haus enda séu þeir að mæta sterku liði með gríðarlega keppnismenn innanborðs. Hann segir að ef liðið gefi ekki allt þá muni það lenda í vandræðum. Kobe skoraði aðeins 15 stig í síðasta leik liðanna en var líkari sjálfum sér í nótt með 26 stig í þremur leikhlutum og hann gat síðan haft það huggulegt. Boston er komið í 3-2 gegn Orlando eftir 92-88 sigur á heimavelli í nótt. Sigurinn var þó afar tæpur því Boston var 14 stigum undir í fjórða leikhluta en átti magnaða endurkomu eins og svo oft áður. Stephon Marbury kom öllum á óvart með mögnuðum leik en hann skoraði öll sín tólf stig í lokaleikhlutanum.
NBA Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Sjá meira