Dallas réð ekkert við Tony Parker og Spurs jafnaði metin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. apríl 2009 09:15 Tim Duncan var ánægður með Tony Parker í leiknum í nótt. Mynd/GettyImages
Tony Parker skoraði 38 stig og gaf 8 stoðsendingar í öruggum 105-84 sigri San Antonio Spurs á Dallas Mavericks í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt en með honum jafnaði San Antonio liðið metin í 1-1. Dallas vann fyrsta leikinn 105-97 sem fór einnig fram í San Antonio en með sigri í nótt þá hefði Spurs-liðið tapað tveimur heimaleikjum í röð í úrslitakeppni í fyrsta sinn síðan 2002. Parker ætlaði ekki að láta það gerast og var kominn með 19 stig strax í fyrsta leikhluta eða jafnmörg stig og allt Dallas-liðið. Parker endaði leikinn á að nýta 16 af 22 skotum sínum. „Þú verður að mæta í sóknarhug í hverja einustu sókn ef ekki til að skora þá til að skapa eitthvað fyrir félagana," sagði Parker sem náði aðeins að skora tvær körfur í seinni hálfleik á fyrsta leiknum og var því augljóslega einbeittur í að gera betur en þá. „Við reyndum fimm varnarmenn á móti honum," sagði Jason Terry, leikmaður Dallas. Næstu tveir leikir fara fram í Dallas en Dallas Mavericks hefur ekki unnið seríu í úrslitakeppni síðan 2006 þrátt fyrir að vera með mjög frambærilegt lið. „Það er ekki svo slæmt að vinna einn af tveimur á þessum erfiða útivelli í San Antonio. Það er samt engin ánægður með það eftir að hann er búinn að vinna fyrsta leikinn," sagði Dirk Nowitzki, leikmaður Dallas. Jason Terry skoraði 16 stig fyrir Dallas, Dirk Nowitzki og Jason Kidd skoruðu báðir 14 stig og Josh Howard fór úr því að skora 25 stig í fyrsta leiknum í að skora aðeins sjö stig í nótt. San Antonio liðið þurfti engin risaframlög frá öðrum leikmönnum þökk sé stórleiks Tony Parker. Tim Duncan var með 13 stig og 11 fráköst og Drew Gooden skoraði 13 stig.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira