Ég átti ekki skilið að komast í stjörnuliðið 30. janúar 2009 22:30 Steve Nash var öllu auðmjúkari en Carmelo Anthony NordicPhotos/GettyImages
Tvöfaldur verðmætasti leikmaður NBA deildarinnar, Steve Nash hjá Phoenix Suns, segist ekkert hafa að athuga við þá staðreynd að hann var ekki valinn í stjörnuliðið að þessu sinni. Mörgum þótti blóðugt að sjá þennan frábæra leikmann ekki á meðal þeirra bestu í stjörnuleiknum þann 15. febrúar, en leikurinn fer einmitt fram í Phoenix að þessu sinni. "Satt besta að segja, þá á ég það eiginlega ekki skilið," sagði Nash þegar hann var spurður út í stjörnuliðið. "Lið okkar er í sjöunda sæti í Vesturdeildinni. Þetta hefði kannski verið önnur saga ef við hefðum verið í fjórða eða fimmta sæti. Það voru einfaldlega leikmenn sem áttu meira skilið að spila stjörnuleikinn en ég," sagði Nash. Framherjinn Carmelo Anthony var ekki alveg jafn auðmjúkur þegar hann komst að því að hann hefði ekki verið valinn í stjörnulið Vesturdeildarinnar. "Ég er dálítið súr, já," sagði Anthony á æfingu Denver í dag - en hann er nú að snúa til baka eftir að hafa verið frá vegna meiðsla í síðustu tíu leikjum liðsins. Hann segir meiðslin hafa haft sitt að segja. "Auðvitað er þetta af því ég var meiddur. Ég held að ég hafi ekki gert neitt af mér til að verðskulda að vera ekki í liðinu. Það þýðir samt ekkert að kvarta yfir því," sagði framherjinn. Anthony var tekinn inn í stjörnuleikinn sem varamaður fyrir meiddan leikmann árið 2006 og var kosinn í byrjunarliðið í fyrra. Hann hefur hinsvegar aldrei hlotið náð fyrir augum þjálfara deildarinnar þegar þeir velja varamennina í stjörnuliðin.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Körfubolti Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira