Formúla 1

Meistararnir börðust á götum Abu Dhabi

Lewis Hamilton þarf að vanda dekkjavalið fyrir kappaksturinn í Abu Dhabi um helglina.
Lewis Hamilton þarf að vanda dekkjavalið fyrir kappaksturinn í Abu Dhabi um helglina. mynd: Getty Images

Tveir meistarar, Lewis Hamilton sem varð meistari í fyrra og Jenson Button, nýkrýndur meistari þessa árs áttust við um að vera fljótastur á götum Abu Dhabi í morgun. Á sunnudag fer fram fyrsta Formúlu 1 mótið á glænýrri braut sem ökumenn aka í tvígang í dag.

Hamilton var 96/1000 úr sekúndu fljótari en Button að þræða McLaren bíl sinn um götur Abu Dhabi, en engin ökumaður hafi ekið brautina fyrr en í dag. Brautin er 5.5 km löng og það nýmæli er að hún liggur að hluta til undir áhorfendastúku á staðnum.

Sebastian Vettel á Red Bull var þriðji fljótastur, 0.2 sekúndum á eftir Hamilton, en hann stefnir á að tryggja sér annað sæti í stigamóti ökumanna. Hann er tveimur stigum á undan Rubens Barrichello, sem náði fjórða besta tíma í morgun.

Önnur æfing er eftir hádegi og sýnt er frá æfingunum á Stöð 2 Sport kl. 20.30 í kvöld.

Sjá aksturstímanna og brautarlýsingu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×