Los Angeles Lakers komst í NBA-úrslitin í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. maí 2009 09:00 Kobe Bryant fagnar með félögum sínum í nótt. Mynd/GettyImages
Los Angeles Lakers vann sannfærandi og auðveldan 119-92 sigur á Denver Nuggets í sjötta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar. Lakers vann því einvígið 4-2 og er komið í lokaúrslitin annað árið í röð. Kobe Bryant átti mjög góðan leik fyrir Lakers-liðið en annars voru margir leikmenn liðsins að leika vel og liðið spilaði mjög vel saman. Bryant fann hið gullna jafnvægi milli þess að skora sjálfur (35 stig) og spila uppi félagana (10 stoðsendingar). Pau Gasol var einnig góður með 20 stig og 12 fráköst og 6 stoðsendingar. Lamar Odom kom með 20 stig og 8 fráköst af bekknum. Trevor Ariza byrjaði leikinn líka frábærlega og endaði leikinn með 17 stig. Denver-liðið náði ekki að ógna Lakers í leiknum þrátt fyrir að vera að berjast fyrir lífi sínu. Carmelo Anthony var stigahæstur með 25 stig og J. R. Smith skoraði 24 stig. Chauncey Billups var með 10 stig og 9 stoðsendingar en klikkaði á 5 af 7 skotum og tapaði fimm boltum. Los Angeles Lakers mætir annaðhvort Orlando Magic eða Cleveland Cavaliers í lokaúrslitunum en staðan er 3-2 fyrir Orlando í úrslitum austurdeildarinnar. Sjötti leikurinn í því einvígi fer fram í Orlando í kvöld og þar getur Magic-liðið tryggt sér sæti í úrslitunum.
NBA Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Sjá meira