Orlando sló meistarana út 18. maí 2009 09:17 Paul Pierce og Ray Allen hjá Boston eru komnir í sumarfrí AP
Meistaralið Boston Celtics er úr leik í úrslitakeppni NBA deildarinnar eftir 101-82 tap fyrir Orlando Magic á heimavelli sínum í oddaleik liðanna í nótt. Orlando hafði örugga forystu nær allan leikinn og er verðskuldað komið í úrslitarimmu Austurdeildar þar sem liðið mætir Cleveland Cavaliers. Boston hefur spilað án Kevin Garnett í úrslitakeppninni og ljóst var að án hans væri liðið alls ekki eins sterkt og í fyrra þegar það vann fyrsta meistaratitilinn í tvo áratugi. Menn gleyma því hinsvegar að lið Orlando er líka undirmannað, því leikstjórnandinn Jameer Nelson hefur ekkert leikið með liðinu í nokkra mánuði. Hann var valinn í stjörnuleikinn í febrúar. "Við trúum því að við getum unni titil og við hættum ekki fyrr en við náum því takmarki," sagði Dwight Howard, leikmaður Orlando. Hedo Turkoglu var stigahæstur hjá Orlando með 25 stig og 12 stoðsendingar, Rashard Lewis skoraði 19 stig , Mickael Pietrus var frábær af bekknum með 17 stig og Dwight Howard skoraði 12 stig, hirti 16 fráköst og varði 5 skot. Ray Allen var stigahæstur í slöku liði Boston mðeð 23 stig, en hann var annars afleitur allt þetta einvígi. Paul Pierce skoraði 7 af 16 stigum sínum af vítalínunni og hitti aðeins úr 4 af 13 skotum. Fyrsti leikur Cleveland og Orlando í úrslitum Austurdeildar verður á miðvikudagskvöldið í Cleveland, en heimamenn hafa ekki tapað leik í úrslitakeppninni. LeBron James og félagar unnu Detroit 4-0 í fyrstu umferð og Atlanta 4-0 í annari umferð. Þetta er í fyrsta sinn sem Boston tapar sjö leikja seríu í úrslitakeppni eftir að hafa komist yfir 3-2, en fyrir þetta einvígi var Boston 32-0 í seríum þar sem liðið hafði náð áðurnefndri forystu.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira