Golf

Tiger Woods heldur sínu striki og er líklegur til afreka

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Tiger Woods og Steve Williams kylfusveinn hans en Steve er tekjuhæsti íþróttamaður Nýja-Sjálands.
Tiger Woods og Steve Williams kylfusveinn hans en Steve er tekjuhæsti íþróttamaður Nýja-Sjálands. AP

Tiger Woods heldur sínu striki á Chevron meistaramótinu í golfi sem fram fer í Bandaríkjunum og er hann með fjögurra högga forskot þegar keppni er hálfnuð. Chevron meistaramótið er óhefðbundið golfmót fyrir atvinnumenn þar sem að aðeins 18 kylfingar taka þátt og gestgjafinn er sjálfur Tiger Woods.

Woods lék á 66 höggum í gær eða 6 höggum undir pari og er hann samtals á 13 höggum undir pari. Woods hefur ekki náð að vinna mót á þessu ári en árið 2001 er eina árið frá því hann gerðist atvinnumaður árið 1996 þar sem hann hefur ekki sigrað.

Norður-Írinn Graem McDowell er annar á 9 höggum undir pari en hann sigrað á opna bandaríska meistaramótinu og var í lykilhlutverki í Ryderliði Evrópu sem sigraði það bandaríska á Celtic Manor í Wales í haust.

Rory McIlroy, sem einnig er frá Norður-Írlandi er á 8 höggum undir pari líkt og Luke Donald frá Englandi.

Rory McIlroy slær hér á öðrum keppnisdegi Chevron meistaramótsins í golfi.AP
Staðan á mótinu eftir 36 holur:

Tiger Woods -13

Graeme McDowell -9

Rory McIlroy -8

Luke Donald -8

Paul Casey -6

Ian Poulter -5

Sean O'Hair -5

Hunter Mahan -5

Nick Watney -5

Dustin Johnson -3

Zach Johnson -2

Stewart Cink par

Jim Furyk +1

Camilo Villegas +1

Bubba Watson +1

Anthony Kim +1

Matt Kuchar +2

Steve Stricker +4

Mótið er ávallt haldið á Sherwood vellinum í Kaliforníu en völlurinn er hannaður af Jack Nicklaus. Fyrsta móti fór fram árið 1999 og var haldið á Grayhawk vellinum í Arizona og þar léku aðeins 16 kylfingar. Til samanburðar má nefna að á venjulegu PGA móti eru yfirleitt 150 kylfingar sem taka þátt.

Norður-Írinn Graeme McDowell sigraði á opna bandaríska meistaramótinu á þessu ári.AP
Eins og áður segir er Tiger Woods aðalhvatamaðurinn að þessu móti og hefur honum tekist bærilega að fá bestu kylfinga heims til þess að taka þátt. Verðlaunaféð er í sérflokki en gestgjafinn hefur gefið styrktarstjóði sínum allt verðlaunaféð sem hann hefur unnið á þessu móti frá upphafi.

Eins og sjá má á keppendalistanum taka margir af bestu kylfingum heims þátt á þessu móti. Sigurvegurum stórmótana fjögurra er ávallt boðið ásamt stigahæstu kylfingum heimslistans. Þar að auki býður styrktarsjóður Woods fjórum kylfingum á mótið.

Frá árinu 2009 hefur mótið verið formlegur hluti af stigakerfi heimslistans en mótið sjálft telst ekki vera hluti af bandarísku PGA mótaröðinni.

Sigurvegarar mótsins frá upphafi:

2009 Jim Furyk

2008 Vijay Singh

2007 Tiger Woods

2006 Tiger Woods

2005 Luke Donald

2004 Tiger Woods

2003 Davis Love III

2002 Pádraig Harrington

2001 Tiger Woods

2000 Davis Love III

1999 Tom Lehman




Fleiri fréttir

Sjá meira


×