Handbolti

Snorri frábær í sigri AG Köbenhavn

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Snorri Steinn var frábær í dag.
Snorri Steinn var frábær í dag.
Snorri Steinn Guðjónsson var einn allra besti maður stórliðsins AG Köbenhavn sem vann meistarana í AaB frá Álaborg fyrir framan 6200 áhorfendur í Ballerup Super Arena í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Þetta er áhorfendamet í dönsku deildinni.

Niclas Ek­berg var markahæstur hjá AG með níu mörk en Snorri skoraði sjö.

Arnór Atlason skoraði eitt mark fyrir AG en Ingimundur Ingimundarsson komst ekki á blað hjá AaB. Kristian Kjelling var markahæstur þar með sjö mörk.

Þetta var fyrsti heimaleikur tímabilsins hjá AG og mikil pressa var á liðinu. Það fer því vel af stað en Guðmundur Guðmundsson er íþróttastjóri félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×