Daníel Berg: Með frábært byrjunarlið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. nóvember 2010 22:00
Daníel Berg Grétarsson átti frábæran leik í kvöld eins og svo margir í liði HK sem vann Hauka í N1-deild karla í kvöld, 36-34. „Þetta hefur verið eins hjá okkur í flestum leikjum síðan við töpuðum fyrir Akureyri," sagði Daníel Berg en HK vann sinn fimmta sigur í röð í kvöld eftir að hafa tapað fyrir Akureyri í fyrstu umferðinni. „Síðan þá höfum við verið að spila mjög góðan sóknarleik og náð mjög góðu forskoti í leikjunum. En við erum að keyra liðið áfram á fáum leikmönnum og það vill oft verða til þess að við missum niður forskotið í síðari hálfleik. Það er þó engin afsökun og í raun algjör óþarfi." Engu að síður hefur HK að skipa gríðarlega sterku byrjunarliði, ekki síst í sókninni. „Við erum með Ólaf Bjarka [Ragnarsson] sem mér finnst vera jafnvel besti leikmaður deildarinnar. Ég vissi líka ekki að Bjarki Már hornamaður væri svona góður áður en ég kom í HK - hann er hrikalega góður." „En ég vil ekki sleppa neinum, við erum með frábært byrjunarlið," sagði Daníel Berg sem skoraði níu mörk í kvöld. „Við ákváðum það eftir fyrsta leikinn að nálgast hvern leik á sama máta enda þurfum við að hafa fyrir hverjum einasta sigri. Þetta er alltaf jafn erfitt. Á meðan við erum að berjast og gefa okkur alla í leikinn þá eigum við alltaf möguleika á sigrinum. En um leið og við höldum að við séum of góðir og byrjum að slaka á þá gerist það sama og gegn Akureyri í fyrsta leiknum - við erum ekkert betri en sá leikur."
Olís-deild karla Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Crystal Palace - Rayo Vallecano | Úrslitaleikur Sambandsdeildarinnar Fótbolti Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Fleiri fréttir FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Sjá meira