Formúla 1

Hamilton: Aldrei meiri samkeppni

Jenson Button og Lewis Hamilton hafa báðir unnið tvo sigra á árinu.
Jenson Button og Lewis Hamilton hafa báðir unnið tvo sigra á árinu. Mynd: Getty Images
Bretinn Lewis Hamilton er efstur í stigamóti ökumanna eftir tvo sigra í röð og spjallaði um stöðu mála á vefsíðu sinni samkvæmt frétt á autosport.com. Fimm mismunandi ökumenn hafa leitt stigamótið til þess, en átta mótum er lokið og ellefu eftir. "Það er ótrúlega mikil samkeppni í íþrótt okkar og mismunandi lið eru að toppa á mismunandi tíma. Það er mikilvægt að halda stöðugleika og ná stigum í hverju móti og fækka mistökum, rétt eins og að vinna einstök mót. Ég held að það sé óhætt að segja það í fyrsta skipti um Formúlu 1., sagði Hamilton í spjalli sínu. "Hvort það er stigakerfið nýja eða að allt að 10 ökumenn eru með tæki og tól til að sigra, þá verða menn að gefa allt sitt í hver mót. Ég elska þá staðreynd, því þannig vill ég keppa." "Það er frábært að vera í forystu, en ég tek engu sem sjálfsögðum hlut, sökum þess hve samkeppnin er mikil. Ég verð að berjast fyrir hverjum hring, hverju stigi í þeim ellefu mótum sem eftir eru. Ég er fimmti ökumaðurinn á árinu sem nær að vera í efsta sæti og því ljóst að það er ekki auðvelt að halda toppsætinu", sagði Hamilton.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×