Umfjöllun: Valur vann í kvöld en er samt úr leik Elvar Geir Magnússon á Hlíðarenda skrifar 17. október 2010 21:15 Anna Úrsúla Guðmundsdóttir skoraði fjögur mörk í kvöld. Mynd/Anton
Valskonur eru úr leik í EHF-bikarkeppninni. Þær unnu seinni leikinn gegn þýska liðinu Oldenburg 28-26 í kvöld en það dugði ekki til. Fyrri viðureign liðanna fór fram á laugardag og vann þýska liðið þá með ellefu marka mun sem var fullstór biti að kyngja fyrir Hlíðarendaliðið. Oldenburg mallaði í öðrum gír í leiknum í kvöld enda staðan góð eftir fyrri leikinn. Valur byrjaði leikinn í kvöld af miklum krafti og komst í 7-3 en þá tók Henning Balthazar, þjálfari Oldenburg, leikhlé. Þýska liðið átti í vandræðum með að finna glufur á varnarleik Vals en staðan var 11-9 fyrir Val í hálfleik. Snemma í seinni hálfleiknum náði Oldenburg að jafna en þá setti Valur aftur í gírinn, tók góða forystu og vann á endanum sigur. Ljóst var að Valsliðið var ekki að fara að vinna upp þennan mun en fer þó úr þessari viðureign með reisn eftir sigurinn í kvöld. Hrafnhildur Skúladóttir var markahæst í Valsliðinu og átti góðan leik en þá var Anna Úrsúla Guðmundsdóttir mjög öflug og lét finna fyrir sér. Valur - Oldenburg 28-26 (11-9) Mörk Vals: Hrafnhildur Skúladóttir 11/5, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4, Kristín Guðmundsdóttir 3, Rebekka Skúladóttir 3, Hildigunnur Einarsdóttir 3, Íris Ásta Pétursdóttir 2, Ágústa Edda Björnsdóttir 1.Varin skot: Guðný Jenný Ásmundsdóttir 12, Sunneva Einarsdóttir 3.
Olís-deild kvenna Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 28-27 | Fyrstu stigin komu gegn toppliðinu Handbolti Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Enski boltinn Harry Maguire sakfelldur í Grikklandi Enski boltinn Svona virkar nýja rangstöðuregla Wengers Enski boltinn City missti tvisvar niður forystu gegn Forest Enski boltinn Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Enski boltinn Vilja lífstíðarbann fyrir þjálfara sem tók upp kvenkyns leikmenn í laumi Fótbolti Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Íslenski boltinn Keppir á Steraleikunum en ætlar líka á næstu Ólympíuleika Sport Skytturnar styrktu stöðu sína á toppnum Enski boltinn Fleiri fréttir Færeyingar unnu sterkan varnarsigur gegn Portúgal „Ógeðslega gaman og ég er ógeðslega ánægð með allar“ „Að vera í þessum íþróttum er stanslaus þjáning“ Engin bikarþynnka hjá Haukum „Það var engin hætta“ Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 28-27 | Fyrstu stigin komu gegn toppliðinu Norðmenn skipta út landsliðsþjálfaranum sínum „Mér finnst við eiga mikið inni“ Átta ára hark á enda „Við ætlum að spóla upp þessa brekku“ Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Einar Bragi öflugur í mikilvægum Evrópusigri Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu „Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sigur hjá Ými en dýrt tap hjá Blæ Sigvaldi á leið í faðm Guðjóns Vals eða Heiðmars? Myndasyrpa: Haukar fögnuðu á heimavelli „Þetta er súrrealísk tilfinning“ „Fyrst og fremst stoltur af leikmönnum liðsins“ „Rætt á fyrsta fundi að stefnt væri að titlum“ Elliði markahæstur í frábærum sigri Uppgjörið: Haukar - ÍR 28-21 | Haukar of stór biti fyrir ÍR Flautumark tryggði Íslendingaliðinu sigur „Með þessa sigurhefð sem við þurfum að búa til“ „Algjör rússibani“ Sjá meira