Handbolti

Orri Freyr marka­hæstur gegn Íslendingaliðinu

Andri Broddason skrifar
Orri Freyr Þorkelsson var markahæsti leikmaður Sporting í kvöld.
Orri Freyr Þorkelsson var markahæsti leikmaður Sporting í kvöld. Getty/Gualter Fatia

Orri Freyr Þorkelsson og félagar í portúgalska liðinu Sporting höfðu betur í Íslendingaslag Meistaradeildar Evrópu í handbolta. Liðið mætti IFK Kristanstad og endaði leikurinn með 36-27 sigri Sporting.

Leikurinn byrjaði gríðarlega jafn og var lítill munur á liðunum fyrri hluta leiks. Staðan var 15-16 þegar lið Sporting skipti alveg um gír fram að hálfleik. Sporting skoraði sex mörk á meðan Kristianstad náði bara að skora eitt og var Sporting með góða forystu í hálfleik 22-16.

Kristianstad náði ekki að saxa á forskot Sporting í fyrri hálfleik og var því róðurinn að verða erfiðari eftir sem leið á leikinn. Lið Sporting byrjaði frekar að fjarlægast Kristianstad og endaði leikurinn með níu marka sigri Sporting.

Orri Freyr skoraði átta mörk fyrir Sporting og var markahæsti leikmaður liðsins. Ekki er alveg hægt að segja það sama um Einar Braga Aðalsteinsson sem skoraði aðeins 3 mörk úr ellefu skotum fyrir Kristanstad og var því aðeins með 27 prósent skotnýtingu. Auk þess fékk hann tvisvar tveggja mínútna brottvísun úr leiknum.

Ólafur Andrés Guðmundsson náði að skora eitt mark fyrir Kristianstad undir lok leiks en Baldur Fritz Bjarnason hjá sama liði náði því ekki,




Fleiri fréttir

Sjá meira


×