Eins og alþjóð veit vann íslenska ungmennalandsliðið frábæran sigur á Þjóðverjum í undankeppni EM í knattspyrnu í vikunni. mörkin má nú sjá á netinu.
1-0: Skúli Jón Friðgeirsson sendir upp hægri kantinn þar sem Gylfi Sigurðsson sendir frábærlega fyrir á Birki Bjarnason. Miðjumaðurinn tekur á móti boltanum og leggur hann í hornið.
1-1: Þjóðverjar jafna þegar Kevin Grosskreutz er einn og óvaldaður á fjærstönginni. Hann skorar með skoti sem Haraldur ver inn.
2-1: Gylfi Sigurðsson fiskar aukaspyrnu og smyr hana glæsilega yfir vegginn og upp í samskeytin.
3-1: Kolbeinn Sigþórsson fær stungusendingu og vippar glæsilega yfir markmann Þjóðverja sem kom út á móti honum. Boltinn hefði hvorki mátt vera fastari, né lausari, til að fara inn.
4-1: Alfreð Finnbogason (ekki Kjartan Henry Finnbogason eins og segir í myndbandinu) stelst inn í sendingu til baka, fer léttilega framhjá markmanninum með einni snertinu og setur boltann í netið.
Mörkin má sjá með því að smella á stöðuna fyrir hvert mark.
Íslenski boltinn