Koscielny í lagi eftir allt saman en Djourou verður ekki með Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2010 16:51 Laurent Koscielny. Mynd/Nordic Photos/Getty
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var alltof fljótur á sér að afskrifa Laurent Koscielny eftir heilahristinginn hans um síðustu helgi. Koscielny átti að vera frá fram á nýtt ár en Frakkinn stóðst hinsvegar læknisskoðun í dag og verður því með á móti Partizan Belgrad í Meistaradeildinni á morgun. Það eru þó ekki eintómar góðar fréttir því Johan Djourou mun missa af leiknum vegna meiðsla aftan í læri. Djourou er að koma til baka eftir erfið hnémeiðsli og Wenger ætlar að passa upp á hann. „Koscielny hefur fengið grænt ljós frá læknunum og hann verður með í leiknum á morgun," sagði Arsene Wenger á blaðamannafundi í dag. „Djourou er tæpur en við viljum ekki taka áhættu með hann og því kemur Eboue inn í hópinn fyrir hann. Annars er hópurinn eins og á móti Fulham," sagði Wenger. Þrátt fyrir öll vandræðin með miðverðina í vetur þá ætlar Wenger ekki að kaupa varnarmann í janúar. „Ég vona að við fáum Vermaelen til baka og þá erum við með fjóra miðverði auk þess að hafa möguleikanna á að nota (Alex) Song. Það ætti að vera nóg," sagði Wenger.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira