Formúla 1

Formúla 1 er enn of dýr

BMW liðið er meðal liða sem hefur hætt í Formúlu 1 síðustu ár vegna of mikls rekstrarkostnaðar.
BMW liðið er meðal liða sem hefur hætt í Formúlu 1 síðustu ár vegna of mikls rekstrarkostnaðar. mynd: kappakstur.is
Ný kjörinn forseti FIA, Jean Todt segir Formúlu 1 íþróttina enn of kostnaðarsama, þó dregið hafi verið verulega úr kostnaði með ákveðnum aðgerðum síðustu ár. Todt telur að enn meira verði að gera.

"Rekstraraðilar í Formúlu 1 eru oft blindir og sjá ekki hvað er að gerast í heiminum. En íþróttin hefur aldrei lent í svona krísu áður. Max Mosley vann ötullega að því að minnka kostnað og fékk gagnrýni fyrir. Sannleikur er hins vegar sá að Honda, BMW og Toyota hafa öll hætt", sagði Todt.

"Það eru hins vegar frábærar fréttir að ný lið eru kominn til sögunnar í stað stóru liðanna, en engu að síður verður enn að draga úr kostnaði. Keppnislið hafa ákveðið að hætta að nota KERS og engar tæknilegar nýjungar verða á næsta ári. Ég geri ráð fyrir góðri samvinnu við keppnisliðin, bæði hvað varðar rekstarkostnað og að bæta mótshald tl muna!", sagði Todt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×