Framhald friðarviðræðna í óvissu 28. september 2010 01:00 deilur Ísraelskir landtökumenn hafa komið sér fyrir á svæðum Palestínumanna og reist þar byggðir í stórum stíl, með hervernd frá Ísrael.nordicphotos/AFP
Mahmoud Abbas, forseti Palestínustjórnar, sagði í Frakklandi í gær að stjórnin muni bíða í að minnsta kosti viku þangað til ákvörðun verður tekin um framhald friðarviðræðna við Ísrael. Palestínumenn höfðu sagt friðarviðræðunum sjálfhætt ef byggingaframkvæmdir ísraelskra landtökumanna myndu hefjast aftur á herteknu svæðunum, en tíu mánaða framkvæmdabann rann út um helgina. „Við ætlum ekkert að bregðast hratt við,“ sagði Abbas að loknum fundi hans með Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta í gær. Fyrst ætli hann að ræða málið við aðra leiðtoga Palestínumanna, og síðan muni þeir taka málið upp á fundi Arababandalagsins næstkomandi mánudag. „Að þessum fundahöldum loknum getum við lagt fram greinargerð sem skýrir afstöðu Palestínumanna og araba til þessa máls, nú þegar Ísraelar hafa neitað að banna landtökuframkvæmdir lengur.“ Bæði Palestínumenn og Bandaríkjamenn höfðu lagt hart að Ísraelsstjórn að framlengja framkvæmdabannið svo viðræðum verði ekki stefnt í hættu.- gb
Fréttir Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Sjá meira