Gunnar: Höfum ekki verið rassskelltir fyrr en núna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. nóvember 2010 22:10 Mynd/Daníel
Gunnar Andrésson, þjálfari Aftureldingar var allt annað en sáttur með leik sinna manna í átta marka tap fyrir FH á heimavelli í kvöld. Afturelding komst lítið áleiðis gegn sterkri vörn Hafnarfjarðarliðsins í leiknum. "Þetta var klárlega okkar lélegasti leikur í vetur og við áttum ekkert skilið úr þessum leik. Haffi stóð sig mjög vel í markinu og varnarlega séð vorum við allt í lagi en sóknarlega voru við arfaslakir. Við náðum ekkert að breyta því þar sem við vorum gjörsamlega á hælunum allan leikinn. Við náðum engan veginn að koma okkur út í því," sagði Gunnar. "Það er mjög svekkjandi að vera ekki búnir að vinna leik hér á heimavelli og það er í raun ekkert við það að bæta," sagði Gunnar. "Við verðum að fara yfir þennan leik og fara í naflaskoðun hvað er að plaga okkur. Við höfðum ekki verið rassskelltir fyrr en núna. Við vorum teknir og jarðaðir hér á heimavelli. Mér fannst ótrúlegt að við skyldum vera inn í leiknum eftir fyrri hálfleikinn því við fórum inn í hálfleik 11-7 undir þrátt fyrir að hafa verið arfa lélegir," sagði Gunnar sem þarf að reyna að rífa liðið sitt upp. "Við þurfum að spýta í lófana og reyna að koma tvíelfdir til leiks í næsta leik," sagði Gunnar að lokum.
Olís-deild karla Mest lesið Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Fleiri fréttir Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Sjá meira