Formúla 1

Alonso: Red Bull menn mjög fljótir

Fernando Alonso er vinsæll þessa dagana, enda vann hann fyrsta mót ársins og ekur með Ferrari.
Fernando Alonso er vinsæll þessa dagana, enda vann hann fyrsta mót ársins og ekur með Ferrari. Mynd: Getty Images
Fernando Alonso var í basli á æfingum í morgun og náði ekki að nýta sér þurra braut á seinni æfingu af tveimur, þegar rigningarskvetta truflaði æfinguna oftar en eini sinni. Hann náði aðeins fimmtánda besta tíma og skorti því æfingatíma á brautinni. "Við nýttum fyrri æfinguna vel og öfluðum upplýsinga, en á seinni æfingunni náðum við ekki að keyra eins mikið og við vildum. Sérstaklega ekki á mýkri dekkjunum. Við erum því ekki með þær upplýsingar fyrir kappaksturinn sem við þurfum. En það sama á við alla, þannig að ég hef ekki áhyggjur. Við náðum að gera svona 80% af því sem gera þurfti", sagði Alonso sem vann fyrsta mót ársins. Hann telur að Red Bull liðið sé með öflugasta bílinn, en Ferrari, McLaren og Mercedes komi næst. "Red Bull er fljótasti bíllinn eftir veturinn og fyrsta mótið. Þeir eru mjög, mjög fljótir, en svo eru þrjú lið þar á eftir. Það verður kapphlaup á mili móta að þróa bílanna til að standast slaginn í meistarakeppninni og það mun skipta máli. Mitt lið er eitt það besta í því fagi og því hef ég ekki áhyggjur þó Red Bull menn séu fljótir þessa dagana", sagði Alonso.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×