Formúla 1

Mót nærri New York enn möguleiki

Hermann Tilke, í miðjunni hefur heimsótt brautarstæði sem er í New York fylki.  Hann er hér að ræða við Charlie Whtiing brautarstjóri Formúlu 1 og fleiri á mótssvæðinu í Barein sem hann hannaði.
Hermann Tilke, í miðjunni hefur heimsótt brautarstæði sem er í New York fylki. Hann er hér að ræða við Charlie Whtiing brautarstjóri Formúlu 1 og fleiri á mótssvæðinu í Barein sem hann hannaði. Mynd: Getty Images

Ekki er lokum fyrir það skotið að Formúlu 1 mót geti orðið í New York fylki, þó áætlun um mót við New Jersey hafi fallið um sjálft sig, en sá staður er skammt frá miðborg Manhattan í New York. Borgarstjóri svæðisins hafnaði hugmyndinni.

Formúlu 1 lið hafa áhuga á móti í Bandaríkjunum, ekki síst bílaframleiðendur þar sem landið er stórt markaðssvæði, ef Formúla 1 hefur átt erfitt uppdráttar þar í landi, en NASCAR er geysilega vinsæl akstursíþrótt þar.

Bílaklúbbur sem nefnist Monticello Motor Club er með braut í 90 mínútna fjarlægð frá Manhattan og samkvæmt frétt autosport.com þá hefur Ari Strauss, forseti brautarinnar boðið brautarhönnuðinum Hermann Tilke á svæðið og það verið skoðað. Þá hefur Ari rætt við Bernie Ecclestone um málið og falaðist eftir 10 ára samningi.

Ari hefur síðan unnið að því að sannfæra ýmiskonar forsvarsmenn á heimaslóðum sínum um möguleikann á Formúlu 1 móti á Monticello brautinni, en gera þyrfti endurbætur á aðstöðuna til að það geti gengið eftir.

"Að tryggja sér Formúlu 1 mót er eins og að vinna Olympíuleikanna. Það er hörð samkeppni og ekkert er frágengið. Það er möguleiki á Formúlu 1 móti og það er spennandi, en við einbeitum okkur að klúbbstarfsemi og meðlimum þess í bili", sagði Ari m.a. í bréfi í ritinu Autoweek í Bandaríkjunum.

Brautin sem hann er í forsvari fyrir er 4.1 mílu löng og með 22 beygjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×