Handbolti

Möguleikarnir í N1-deild karla fyrir næstsíðustu umferðina í kvöld

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
HK og Haukar eru að berjast um fjórða sæti deildarinnar en Valsmenn geta reyndar enn blandað sér í þá baráttu.
HK og Haukar eru að berjast um fjórða sæti deildarinnar en Valsmenn geta reyndar enn blandað sér í þá baráttu.
Næstsíðasta umferð N1-deildar karla fer fram í kvöld en mikil spenna ríkir um síðustu sætin í úrslitakeppninni.

Fjögur efstu lið deildarinnar komast í úrslitakeppnina en Akureyri og FH eru þegar örugg með sæti í úrslitakeppninni. Akureyri er deildarmeistari en FH, sem var spáð titlinum í haust, er í öðru sæti.

Fram er í vænlegri stöðu í þriðja sætinu með 23 stig og getur liðið gulltryggt sér sæti í úrslitakeppninni með sigri á HK á heimavelli í kvöld. Það skal reyndar tekið fram að Framarar eiga enn möguleika á að ná öðru sætinu af FH-ingum eins og staðan í deildinni er nú.

Mikilvægur Hafnafjarðarslagur

HK-ingar eiga í harðri keppni við Hauka um fjórða og síðasta sætið í úrslitakeppninni en bæði lið eru með 20 stig. HK hefur þó betur í innbyrðisviðureignum liðanna og því öruggt með fjórða sætið ef þessi tvö lið verða jöfn að stigum eftir lokaumferðina.

Haukar eiga útileik gegn FH í miklum Hafnarfjarðarslag þar sem spilað er um bæjarstoltið. FH getur gert Haukum mikinn grikk með því að vinna leiki liðanna í kvöld og eru FH-ingar sjálfsagt minnugir lokaumferðinnar í deildinni í fyrra. Þá vann FH sinn leik en þurfti að treysta á að grannar sínir í Haukum, sem voru þegar búnir að tryggja sér deildarmeistartitilinn, myndu vinna sinn leik gegn Akureyri.

Haukar töpuðu hins vegar og Akureyri komst í úrslitakeppnina á kostnað FH.

Valur á enn möguleika

Það má þó ekki gleyma því að Valsmenn eiga enn möguleika á að setja strik í reikninginn í baráttu Hauka og HK í ár. Valur er með sextán stig, fjórum stigum á eftir hinum félögunum þegar fjögur stig eru eftir í pottinum. Valur á því enn möguleika á sæti í úrslitakeppninni en liðið mætir botnliði Selfoss í kvöld.

Sigri Valur í kvöld getur liðið náð Haukum að stigum með sigri í leik liðanna í lokaumferðinni - það er að segja ef Haukar tapa í kvöld.

HK þyrfti þá að tapa báðum sínum leikjum sem liðið á eftir, gegn Fram í kvöld og svo FH í lokaumferðinni í næstu viku. Fari svo, verða öll þrjú liðin jöfn í 4.-6. sæti deildarinnar með 20 stig hvert.

Þriggja liða mót

Ef svo fer mun Valur fara í úrslitakeppnina þar sem að liðið er með bestan árangur þessara þriggja liða í innbyrðisviðureignum þeirra. Að því gefnu að Valur vinni Hauka í lokaumferðinni hefur hvert lið unnið þrjá leiki hvert en Valsmenn yrðu þá með besta markahlutfallið, eins og má lesa nánar um hér neðst í greininni.

Fallbarátta nýliðanna

Nýliðar Aftureldingar og Selfoss eru með átta stig í neðstu sætum deildarinnar. Liðið sem verður neðst fellur beint í 1. deildina en næstneðsta liðið í N1-deild karla tekur þátt í umspili um sæti í efstu deild ásamt liðunum sem verða í 2., 3. og 4. sæti 1. deildarinnar.

Afturelding hefur unnið báðar innbyrðisviðureignir liðanna í vetur og stendur því betur af vígi ef liðin verða jöfn að stigum eftir að deildarkeppninni lýkur.

Þessi lið mætast einmitt í lokaumferðinni í næstu viku og ef bæði lið verða enn jöfn að stigum þá dugir Afturelding jafntefli í þeim leik til að tryggja sér sjöunda sætið.

Staðan í deildinni:

1. Akureyri 31 stig

2. FH 26

3. Fram 23

4. HK 20

---

5. Haukar 20

6. Valur 16

---

7. Afturelding 8

---

8. Selfoss 8

Leikir kvöldsins (kl. 19.30):

Fram - HK

FH - Haukar

Valur - Selfoss

Akureyri - Afturelding

Lokaumferðin (7. apríl kl. 19.30):

Akureyri - Fram

HK - FH

Haukar - Valur

Afturelding - Selfoss

Þriggja liða mót:

HK - Haukar 36-34

Haukar - HK 22-23

Haukar - HK 29-28

Valur - HK 28-33

HK - Valur 22-32

HK - Valur 28-32

Valur - Haukar 26-30

Haukar - Valur 23-22

Haukar - Valur ??-?? (Forsendur útreikninganna eru að Valur vinni þennan leik)

Staðan:

1. Valur 6 stig (minnst +5 í markatölu)

2. Haukar 6 stig (mest +2 í markatölu)

3. HK 6 stig (-7 í markatölu)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×