Redknapp: Verðum að vera aftur með á næsta ári Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. apríl 2011 21:21 Harry Redknapp, stjóri Tottenham. Nordic Photos / Getty Images
Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hvatti sína menn til að sýna hvað í þeim býr og tryggja sér þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu aftur fyrir næsta tímabil. Til þess þarf liðið að tryggja sér eitt af fjórum efstu sætum ensku úrvalsdeildarinnar en liðið er nú í fimmta sæti, þremur stigum á eftir Manchester City sem er í því fjórða. Tottenham á þó leik til góða. Tottenham féll í kvöld úr leik í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir 5-0 samanlagt tap fyrir Real Madrid. Þeir spænsku unnu fyrri leikinn 4-0 og því var leikurinn í kvöld hálfgert formsatriði. „Það er ekki nógu gott að vera með einu sinni og svo ekki meir,“ sagði Redknapp eftir leikinn í kvöld. „Við verðum að bæta okkur og vera aftur með á næsta ári.“ „Við höfum séð leikmenn sem hafa spilað í þessum gæðaflokki og við verðum að fínstilla okkar leikmannahóp þannig að okkur takist að komast þangað aftur. Við þurfum að taka okkur lið eins og Arsenal, Chelsea og Manchester United til fyrirmyndar í þessum efnum.“ „Við verðum að vera fyrir ofan Manchester City og Chelsea í deildinni,“ bætti Redknapp við en Chelsea er nú í þrijða sætinu með 58 stig, fimm á undan Tottenham. „Það er okkar markmið. Þetta verður ekki auðvelt en það er það sem við viljum gera.“
Meistaradeild Evrópu Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira