Handbolti

Ásbjörn: Fullt af öðrum leikmönnum í FH sem voru líka frábærir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
„Ég er hæstánægður með þessi verðlaun enda er þetta fínasta viðurkenning fyrir mann," sagði Ásbjörn Friðriksson sem í dag var valinn besti leikmaður umferða 15 til 21 í N1 deild karla í handbolta.

„Þriðja umferðin gekk mjög vel, við vorum að spila góðan handbolta og vinnum sex leiki og gerum eitt jafntefli sem segir sitt," sagði Ásbjörn sem spilar sem leikstjórnandi og stjórnar spili FH-liðsins auk þess að vera einn af markahæstu mönnum liðsins.

„Ef maður spilar vel þá fær maður góða athygli en ef maður spilar illa þá fær maður að heyra það. Þannig á það að vera," sagði Ásbjörn.

„Við erum að verða samæfðara lið og farnir að þekkja betur inn á hvern annan. Varnarleikurinn er líka búinn að vera mjög góður í þriðju umferðinni, markvarslan hefur síðan komið með og það hefur skilað sér," sagði Ásbjörn en FH-liðið komst nú í sína fyrst úrslitakeppni síðan árið 2005.

„Við höfum lengi stefnt á að komast í úrslitakeppnina. Við komust ekki í úrslitakeppnina í fyrra og vildum bæta fyrir það núna. Það gekk ágætlega, við náðum öðru sæti sem tryggir okkur heimavöllinn á móti Fram á fimmtudaginn," sagði Ásbjörn.

„Þetta eru búnir að vera hörkuleikir á móti Fram í vetur. Þeir unnu okkur tiltölulega sannfærandi í fyrsta leik en síðan er búið að vera jafnt og við höfum unnið þá í síðustu tveimur leikjum í Safamýrinni. Þetta einvígi verður mjög skemmtilegt, ég get lofað því," sagði Ásbjörn en hann var einn af þremur leikmönnum Hafnarfjarðarliðsins sem fengu verðlaun í dag.

„Það er kannski ekkert óeðlilegt miðað við uppskeruna í þriðju umferð að það hafi verið nokkrir í liði umferðarinnar. Ég held að flest allir í FH-liðinu hafi spilað vel í þessari umferð og það er bara öflug liðsheild sem er að skila þessu frekar heldur en þeir leikmenn sem voru valdir núna í úrvalsliðið. Það voru fullt af öðrum leikmönnum í FH sem voru líka frábærir í þessari umferð," sagði Ásbjörn en það er hægt að sjá allt viðtalið með því að smella hér fyrir ofan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×