Ronaldo: Allir vita að dómararnir eru hliðhollir Barca Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2011 10:15 Cristiano Ronaldo. Mynd/AP
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, tók undir umdeild orð þjálfara síns Jose Mourinho frá því eftir fyrsta leikinn, þegar hann talaði við blaðamenn eftir að Real Madrid datt út úr Meistaradeildinni í gærkvöldi fyrir erkifjendum sínum í Barcelona. Liðin gerðu 1-1 jafntefli á Camp Nou í gær en Barcelona fór áfram þökk sé 2-0 sigri sínum á Santiago Bernabeu í síðustu viku þar sem Lionel Messi skoraði bæði mörkin eftir að Real Madrid missti mann af velli með rautt spjald. „Við vissum að við gátum unnið Barca en dómarinn leyfði það bara ekki. Einu sinni sem oftar var það dómarinn sem stóð í vegi fyrir okkur," sagði Cristiano Ronaldo sem er enn dýrasti knattspyrnumaður heims. „Dómarinn í fyrri leiknum rændi okkur möguleikanum á því að komast í úrslitaleikinn. Þeir sem vita eitthvað um fótbolta sjá það að Barcelona fær alltaf hagstæða dómgæslu," sagði Ronaldo. Real Madrid komst í 1-0 í leiknum í gær en mark Gonzalo Higuain var dæmt af þar sem dómarinn taldi að Ronaldo hefði fellt Javier Mascherano. „Markið hans Higuain var löglegt. (Gerard) Pique ýtti mér og ég lenti á Mascherano. Mascherano var ekki vanur því að láta sig detta á Englandi en hann hefur tekið þann ósið upp eins og allir sem spila hér," sagði Ronaldo svekktur eftir leikinn en einhverjum finnst hann þarna þó vera að kasta steinum úr glerhúsi. „Barcelona hefur mikil völd utan vallarins. Ég tel ekki að Barcelona hafi verið betri en við en þeir fengu bara mikla hjálp frá dómurunum," sagði Ronaldo.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira