Chicago í úrslit Austurdeildarinnar í fyrsta sinn í þrettán ár Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. maí 2011 09:00 Carlos Boozer og Derrick Rose fagna í nótt. Mynd/AP
Chicago Bulls er komið áfram í úrslit Austurdeildarinnar í úrslitakeppninni í NBA-deildinni í körfubolta eftir sigur á Atlanta Hawks í nótt, 93-73. Chicago vann þar með rimmu liðanna í undanúrslitum, 4-2, og mætir Miami í úrslitunum. Sigurvegari þeirrar rimmu kemst svo í sjálf lokaúrslitin þar sem spilað verður um meistaratitilinn. Sigurinn í nótt var öruggur en Chicago náði forystunni snemma í leiknum og lét hana aldrei af hendi. Staðan í hálfleik var 45-35 en munurinn jókst svo enn meira eftir því sem leið á seinni hálfleikinn. Chicago spilaði frábæran varnarleik í nótt og hélt Atlanta í 37 prósent skotnýtingu. Derrick Rose hafði óvenju hægt um sig í sókninni en leyfði félögum sínum að blómstra þess í stað. Hann skoraði nítján stig en var með tólf stoðsendingar. Carlos Boozer skoraði 23 stig og tók tíu fráköst. Hjá Atlanta var Joe Johnson stigahæstur með nítján stig en Josh Smith skoraði átján. Chicago komst síðast svo langt í úrslitakeppninni er liðið varð meistari árið 1998 með þá Michael Jordan, Scottie Pippen og félaga innanborðs. Pippen var á leiknum í nótt og fylgdist stoltur með.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira