Wilshere: Fletcher, Park og Valencia nýtast vel gegn Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. maí 2011 11:30 Jack Wilshere reynir að stoppa Lionel Messi í leik á móti Barcelona. Mynd/Nordic Photos/Getty
Jack Wilshere, miðjumaður Arsenal og enska landsliðsins, segir United-liðinu henti betur að mæta Barcelona en Arsenal. Barcelona sló Arsenal út úr sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar en Wilshere hefur sínar skoðanir á því hvernig Manchester United eigi að spila á móti Barcelona þegar þau mætast í úrslitaleiknum á Wembley á morgun. „Þrjá sendingar, bang, bang, bang, og þeir eru komnir í gegn. Það þarf að komast alveg að þeim og eins og ég hef sagt áður þá þurfa menn að halda dampi á móti þeim, sagði Jack Wilshere aðspurður um úrslitaleik Manchester United og Barcelona. „United er í góðum málum því þeir hafa leikmann eins og Fletcher sem eltir Barcelona-mennina uppi. Menn verða að stoppa Xavi, Messi og Iniesta því annars munu þeir drepa þig," segir Wilshere. „United á betri möguleika en við á móti Barcelona af því að þeir hafa menn eins og Fletcher, Park og Valencia sem nýtast vel gegn Barcelona. Þeir eru hlauparar sem geta stoppað menn. Ég myndi láta Fletcher spila á miðjunni með Carrick og Giggs," segir Wilshere og bætti við: „Við spiluðum bara með Robin van Persie en ég myndi nota Rooney einan upp á toppi og láta síðan Valencia og Park hjálpa honum af köntunum þegar United-liðið væri með boltann. Þeir verða samt mest allan tímann í vörn í þessum leik því þannig leikur bíður manns alltaf á móti Barcelona," sagði Wilshere. „Möguleikarnir liggja í því að komast alveg að þeim og láta þá finna fyrir sér frá byrjun því þá gefa þeir alltaf eftir í seinni hálfleiknum," sagði Wilshere sem sagði að það hefði einmitt gerst í fyrri leiknum sem Arsenal vann á móti Barcelona í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í ár.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Fótbolti Vestri - Qarabag | Fyrsti heimaleikurinn í 400 kílómetra fjarlægð frá Ísafirði Fótbolti Fleiri fréttir Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Lærisveinar Sigga Ragga áfram eftir víti í uppbótartíma Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Vestri - Qarabag | Fyrsti heimaleikurinn í 400 kílómetra fjarlægð frá Ísafirði Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Gri/Nja - FH | Hvað gerir Ída Marín eftir fimmuna? Donald Trump mun mæta á úrslitaleik HM Áfall fyrir Sverri og íslenska landsliðið Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna Saliba frá í nokkra mánuði Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Sædís og Sandra sameinaðar í Köln Arnar tekur undir gagnrýni á Tuchel: „Allt annað en það sem hann talaði um í aðdraganda mótsins“ Argentíska landsliðið má búast við sekt „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Englendingar snertu varla boltann eftir markið sitt Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Maður dagsins á HM: Með bikarinn og margt fleira flúrað á kroppinn Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Dortmund tilkynnir komu Bjarka Hrafns Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Reyndu að brjótast inn í hús Yamals De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ „Mig dreymdi þetta“ Sjá meira