Handbolti

Danir, Norðmenn og Svíar til Serbíu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Michael Knudsen og félagar eru komnir með farseðilinn til Serbíu
Michael Knudsen og félagar eru komnir með farseðilinn til Serbíu Mynd/Getty Images
Frændur okkar Danir, Norðmenn og Svíar tryggðu sér farseðilinn á lokakeppni Evrópumótsins í handknattleik. Þjóðirnar unnu leiki sína í undankeppninni í gær. Íslandi dugar sigur gegn Austurríki í leik liðanna á sunnudag til þess að komast áfram.

Auk Norðurlandaþjóðanna þriggja eiga sex aðrar þjóðir tryggt sæti. Rússland og Þýskaland, sem unnu leiki sína í gær auk Ungverjalands og Króatíu sem voru fyrstu þjóðirnar til þess að komast áfram.

Gestgjafarnir frá Serbíu fá sjálfkrafa sæti í lokakeppninni auk ríkjandi Evrópumeistara Frakka. Lokakeppnin fer fram í janúar 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×