Skagamenn juku forskot sitt á toppnum í sex stig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2011 22:10 Skagamenn eru í góðum málum í 1.deildinni. Mynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson
Skagamenn eru komnir með sex stiga forskot í 1. deild karla eftir leiki kvöldsins sem voru í 6. umferð deildarinnar. ÍA vann 3-1 sigur á ÍR upp á Skaga og græddi á því að bæði Haukar og Þróttur, liðin í næstu sætum á eftir, töpuðu bæði sínum leikjum. Mark Doninger skoraði tvö mörk fyrir ÍA og Ragnar Leósson innsiglaði 3-1 sigur í seinni hálfleik. Haukur Ólafsson jafnaði leikinn í 1-1 en tveir ÍR-ingar fengu að líta rauða spjaldið í leiknum, Halldór Arnarsson í fyrri hálfleik og Jóhann Björnsson í þeim seinni. Grótta vann 3-2 sigur á Haukum á Nesinu og hefur þar með náð í sjö stig í síðustu þremur leikjum sínum. Hilmar Trausti Arnarsson og Ásgeir Þór Ingólfsson komu Haukum tvisvar yfir í fyrri hálfleik en Magnús Bernhard Gíslason jafnaði í bæði skiptin og Einar Bjarni Ómarsson tryggði Gróttu síðan sigurinn 22 mínútum fyrir leikslok. Viðar Örn Kjartansson skoraði tvö mörk og Jón Daði Böðvarsson gerði eitt þegar Selfyssingar unnu 3-0 sigur á Þrótti á Valbjarnarvelli en Þróttarar voru búnir að vinna þrjá leiki í röð fyrir leikinn. Selfyssinar unnu hinsvegar annan leikinn sinn í röð Skagamenn eru nú með 16 stig af 18 mögulegum á toppnum en Haukar, Fjölnir, Þróttur R. og Selfoss eru síðan öll með tíu stig í næstu fjórum sætum á eftir. Leiknir R. og BÍ/Bolungarvík mætast í lokaleik umferðarinnar á Leiknisvelli á morgun. Úrslitin í leikjum kvöldsins í 1. deild karla:ÍA-ÍR 3-1 1-0 Mark Doninger (21.), 1-1 Haukur Ólafsson (40.), 2-1 Mark Doninger (43.), 3-1 Ragnar Leósson (74.)Grótta-Haukar 3-2 0-1 Hilmar Trausti Arnarsson (25.), 1-1 Magnús Bernhard Gíslason (35.), 1-2 Ásgeir Þór Ingólfsson (38.), 2-2 Magnús Bernhard Gíslason, víti (57.), 3-2 Einar Bjarni Ómarsson (68.)Þróttur-Selfoss 0-3 0-1 Viðar Örn Kjartansson, 0-2 Viðar Örn Kjartansson, 0-3 Jón Daði Böðvarsson.KA-Fjölnir 1-4 0-1 Viðar Guðjónsson (7.), 0-2 Illugi Gunnarsson, víti (21.), 0-3 Kristinn Freyr Sigurðsson (38.), 0-4 Illugi Gunnarsson, víti (72.), 1-4 Guðmundur Óli Steingrímsson (90.)
Íslenski boltinn Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Körfubolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira