Handbolti

Björgvin Páll í liði ársins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Björgvin Páll Gústavsson í leik með íslenska landsliðinu.
Björgvin Páll Gústavsson í leik með íslenska landsliðinu. Nordic Photos / AFP
Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson var valinn í lið ársins í svissnesku úrvalsdeildinni af vefsíðunni handballworld.com. Hann kom einnig til greina sem handknattleiksmaður ársins.

Björgvin Páll átti frábært tímabil með Kadetten Schaffhausen og vann allt sem hægt var að vinna heima fyrir. Í Meistaradeildinni komst liðið í 16-liða úrslit og stóð sig vel.

Björgvin varð þó að játa sig sigraðan í kjörinu um leikmann ársins fyrir liðsfélaga sínum, Peter Kukucka.

Björgvin Páll var á mála hjá liðinu í tvö ár en heldur til þýska úrvalsdeildarfélagsins Magdeburg nú í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×