Tómas Ingi: Auðvitað er þetta sárt Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. júní 2011 16:46 Tómas Ingi í leik með HK.
Tómas Ingi Tómasson var í dag rekinn sem þjálfari 1. deildarliðs HK. Við starfi hans tekur Ragnar Gíslason sem hefur verið yfirþjálfari yngri flokka hjá HK. Kópavogsliðinu hefur ekki gengið vel undir stjórn Tómasar Inga og situr á botni 1. deildarinnar með aðeins eitt stig eftir sjö leiki. "Auðvitað er sárt að vera rekinn því þetta er höfnun. Ég átti mikið verk eftir óunnið með liðinu og fannst leikmenn standa við bakið á mér. Að sama skapi skil ég þessa ákvörðun HK enda árangurinn ekki góður," sagði Tómas Ingi við Vísi. Tímasetningin á uppsögninni vekur óneitanlega athygli enda Tómas Ingi nýkominn heim frá Danmörku þar sem hann var með U-21 árs landsliðinu. Einhverjar sögusagnir voru um að hann fengi að fjúki fyrir EM en þar sem hann hélt starfinu var búist við því að hann fengi lengri tíma í starfi en af því varð ekki. "Tímasetningin kemur svolítið á óvart en það er ekki til nein góð tímasetning þannig séð fyrir svona ákvarðanir," sagði Tómas Ingi en HK á leik gegn Grindavík í bikarnum annað kvöld og Ragnar fær lítinn tíma til þess að undirbúa liðið fyrir þann leik. Sjálfur er Tómas Ingi ekki á þeim buxunum að gefast upp þó svo illa hafi gengið í fyrstu atrennu sem þjálfari. "Ég tel mig hafa mikið að gera í fótbolta og mun reyna að styrkjast eftir þessa reynslu. Ég hef mikla þekkingu á íþróttinni og mun reyna að miðla þeirri þekkingu áfram. Ég ætla að vera lengi í boltanum og held áfram á minni braut."
Íslenski boltinn Mest lesið Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Fótbolti Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Körfubolti Sneypuför danskra til Lundúna Fótbolti Meistararnir lágu á heimavelli Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Fleiri fréttir Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Sjá meira