Bikarævintýri BÍ/Bolungarvíkur heldur áfram Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. júlí 2011 15:52 Úr leik Þróttar og BÍ.
Lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar í BÍ/Bolungarvík halda áfram að fara á kostum í Valitor-bikarnum. BÍ er komið í undanúrslit í fyrsta skipti í sögu félagsins eftir 3-2 sigur á Þrótti á Torfnesvelli í dag. Leikurinn byrjaði með gríðarlegum látum því Guðfinnur Þórir Ómarsson kom Þrótturum yfir eftir rúma mínútu. Þróttarar voru nánast enn að fagna markinu þegar Nicholas Deverdics jafnaði leikinn fyrir heimamenn með marki úr aukaspyrnu. Heimamenn létu kné fylgja kviði og Alexander Veigar Þórarinsson kom BÍ/Bolungarvík yfir á 8. mínútu. Lygileg byrjun. Fleiri mörk voru þó ekki skoruð í fyrri hálfleik og heimamenn því marki yfir í hálfleik. Síðari hálfleikur var mjög fjörugur. Nicholas Deverdics kom BÍ í 3-1 á 65. mínútu og aftur með marki beint úr aukaspyrnu. Glæsilegt mark. Þróttarar tóku miðju, brunuðu upp völlinn og Sveinbjörn Jónasson lét vaða af löngu færi. Boltinn söng í netinu. Ótrúleg mínúta og staðan 3-2. Þróttarar gerðu allt hvað þeir gátu til þess að jafna leikinn og næst komust þeir með skalla í slá undir lokin. Boltinn vildi þó ekki inn og Djúpmenn þar af leiðandi komnir í undanúrslit keppninnar.
Íslenski boltinn Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Körfubolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira