UEFA vísar Olympiakos Volos úr Evrópudeildinni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. ágúst 2011 17:30 Achilleas Beos stjórnarformaður Volos hylur handjárnin eftir réttarhöldin í Grikklandi í júní.
Gríska knattspyrnufélaginu Olympiakos Volos hefur verið vísað úr Evrópudeildinni. Félagið átti að mæta Paris Saint Germain í 4. umferð forkeppninnar í næstu viku en varð uppvíst um hagræðingu úrslita í heimalandinu. Gríska knattspyrnusambandið ákvað fyrr í vikunni að draga stig af tveimur félögum, Volos og Kavala, en upphaflega átti að senda félögin niður í næstefstu deild. Volos byrjar tímabilið með -10 stig en Kavala -8 stig. Nú hefur UEFA tekið málið fyrir og refsað Volos sem fyrr segir með útilokun frá frekari þátttöku í Evrópudeildinni. Félagið tryggði sér sæti í Evrópudeildinni á síðustu leiktíð þegar félagið hafnaði í fimmta sæti. Forsvarsmenn Volos hafa til miðnættis á mánudaginn að áfrýja úrskurðinum. Lögfræðingur félagsins hefur sagt að félagið muni áfrýja úrskurðinum og leita réttar síns hjá alþjóða áfrýjunardómstól íþróttamála. Rannsókn UEFA á hagræðingu úrslita í Grikklandi hófst í júní. Talið er að úrslitum í yfir 40 viðureignum í Grikklandi hafi verið hagrætt. Þar á meðal eru viðureignir í efstu deild þar í landi. UEFA á eftir að ákveða hvaða félag tekur sæti Volos í Evrópudeildinni.
Evrópudeild UEFA Fótbolti Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira