Handbolti

Ingvar og Jónas dæmdu úrslitaleikinn á HM í Argentínu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson.
Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson. Mynd/Stefán
Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson hafa staðið sig mjög vel á HM 19 ára landsliða sem hefur farið fram í Argentínu síðustu daga.

Þeir Ingvar og Jónas hlutu mikla viðurkenningu á sín störf þegar fengu að dæma úrslitaleik mótsins þar sem Danir unnu 24-22 sigur á Spánverjum eftir að hafa verið 13-17 undir í hálfleik.

Danir tryggðu sér Heimsmeistaratitilinn með því að skora þrjú síðustu mörkin í leiknum en þeir unnu seinni hálfleikinn 11-5.

Ingvar og Jónas ráku Spánverja aldrei útaf í leiknum en Danir fengu tvo tveggja mínútna brottrekstra hjá þeim í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×