Formúla 1

Button fagnað í Manschester í dag og býst við áframhaldandi veru hjá McLaren

Jenson Button var vel fagnað í Manchester í dag, en hann ók á götum borgarinnar á McLaren Formúlu 1 bíl.
Jenson Button var vel fagnað í Manchester í dag, en hann ók á götum borgarinnar á McLaren Formúlu 1 bíl. Mynd: McLaren F1
Jenson Button gerir ráð fyrir því að McLaren nýti sér klásúlu í samningi hans við liðið og að hann verði áfram hjá McLaren á næsta ári. Samningur hans við liðið rennur út í lok þessa keppnistímabils, en ákvæði í samningum gefur McLaren rétt á framlengingu.

Í frétt á autosport.com er gefið í skyn að McLaren leiti jafnvel eftir langtímasamningi við Button, sem er 31 árs gamall og varð í þriðja sæti í mótinu á Spa á sunnudaginn.

Button keyrði á götum Manchester í Englandi í dag á Formúlu 1 bíl sínum í kynningarskini fyrir McLaren og samstarfsaðila liðsins.

„Ef Martin Whitmarsh vill nýta ákvæðið og segir já, þá sé ég já. Því ég vill vera hjá liðinu á næsta ári. Það er undir liðinu komið. Ég hef aldrei verið jafn sæll um borð í bílnum og við erum réttri leið", sagði Button í dag.

Hann kvað óljóst hve lengi hann yrði í Formúlu 1 og benti á að trúlega hefðu Michael Schumacher og Rubens Barrichello ekki búist við því fyrir 10 árum að vera keppa í Formúlu 1 í ár. Button minntist líka á erfiðleikanna varðandi sífelld ferðalög vegna móta og sagði:

„Það er erfitt. Ég var að ræða þetta við kærustu mína og það er erfitt að finna stað sem hægt er að kalla heimili. Við erum alltaf á ferðalagi. Það er það erfiðasta við starfið. Maður er aldrei lengi á sama stað", sagði Button.

Hann kvað þægilegt að fara til Japan, þaðan sem kærasta hans er og þau leigja íbúð á meðan þau dvelja þar í kringum Formúlu 1 mótið.

„Við ferðumst til margra frábærra landa og sjáum ólíka menningu. Við erum heppinn, en það eru jákvæðir og neikvæðir punktar við allt", sagði Button.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×