Handbolti

Umfjöllun: Afturelding vann botnslaginn á Nesinu

Stefán Árni Pálsson á Seltjarnarnesi skrifar
Grótta tapaði í dag.
Grótta tapaði í dag. mynd/valli
Afturelding sigraði í dag sinn fyrsta leik í N1-deild karla þegar þeir unnu Gróttu, 26-25, á Seltjarnarnesinu í hörkuleik sem var spennandi alveg fram á síðustu sekúndu. Afturelding hafði ákveðið frumkvæði nánast allan leikinn en Gróttumenn gáfust aldrei upp.

Það mátti búast við hörkuleik á Seltjarnarnesinu í dag en þessi félög verða líklega í botnbaráttunni í vetur og því var þetta sannkallaður fjögra stiga leikur.

Fyrri byrjaði heldur rólega og menn voru ískaldir.

Leikmenn gerðu hvern tæknifeilinn á fætur öðrum og ekki fallegur handbolti sem sást á upphafsmínútunum. Afturelding var með frumkvæðið til að byrja með og komst í 6-3 þegar tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum, ekki mikið skorar til að byrja með.

Gróttumenn fóru í gang á næstu mínútum og skoruðu fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni í 7-6 fyrir heimamenn. Afturelding tók þá leikhlé og komu í kjölfarið virkilega sterkir til baka. Gestirnir skoruðu fimm mörk í röð og allt í einu var staðan 12-8 fyrir Aftureldingu. Staðan var 13-9 í hálfleik eftir heldur daprar 30 mínútur.

Heimamenn byrjuðu síðari hálfleikinn vel og náðu fljótlega að minnka muninn í eitt mark þegar staðan var 15-14 fyrir Aftureldingu, en gestirnir tóku þá strax leikhlé eftir aðeins sjö mínútna leik í síðari hálfleik. Grótta vann boltann strax eftir leikhléið og jafnaði metinn, skelfilegur kafli hjá Aftureldingu.

En eins og saga leiksins þá komu Aftureldingarmenn til baka og skoruðu fjögur mörk í röð og staðan orðin 19-15 fyrir gestina. Afturelding hafði frumkvæði út leikinn en Gróttumenn reyndu hvað þeir gátu að jafna metinn.

Leiknum lauk með sigri gestanna 26-25, en Grótta fékk aukakast á miðjum vellinum þegar leiktíminn var úti en skotið fór langt yfir.

Fyrsti sigur Aftureldingar í höfn á mótinu og fín kveðjugjöf frá Gunnari Andréssyni sem lætur af störfum eftir leikinn. Afturelding er því með tvö stig í deildinni en Grótta er á botninum með aðeins eitt.



Grótta - Afturelding  25-26 (9-13)

Mörk Gróttu (skot):
Benedikt Reynir Kristinsson  6 (11/1), Árni Benedikt Árnason 6 (13), Friðgeir Elí Jónasson 4/2 (6/2), Þorgrímur Smári Ólafsson 3 (11/1), Kristján Orri Jóhannsson  2 (2), Jóhann Gísli Jóhannsson  1 (3/1), Þorgrímur Þórarinsson 1(3), Ágúst Birgisson 1 (1), Hjálmar Þór Arnarsson 1 (2).

Varin skot: Lárus Helgi Ólafsson 8/1 (21/2 , 38%.),Magnús Sigmundsson  7 (20/2, 35%.).

Hraðaupphlaup: 2 (Benedikt)

Fiskuð víti: 4 (Þorgrímur Smári 3, Hjálmar Þór).

Utan vallar: 8 mín

Mörk Aftureldingar (skot): Sverrir Hermannsson 7 (12), Hilmar Stefánsson 6/3  (9/4), Jón Andri Helgason 5 (6), Daníel Jónsson  4 (5), Þrándur Gíslason 2 (5), Helgi Héðinsson 1 (2), Einar Héðinsson 1 (1), Böðvar Páll Ásgeirsson 0 (3).

Varin skot: Hafþór Einarsson 20/3  (45/5, 44%).

Hraðaupphlaupsmörk: 6 (Jón Andri 3, Þrándur, Sverrir og Daníel).

Fiskuð víti: 6 (Jón Andri 2, Hilmar, Þrándur, Helgi og Sverrir).

Utan vallar: 12 mínútur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×