Handbolti

Vandræðalaust hjá Degi og Alexander

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Alexander fékk mikla hvíld í leiknum í kvöld.
Alexander fékk mikla hvíld í leiknum í kvöld. MYND:NORDICPHOTOS/GETTYS
Füchse Berlin átti ekki í vandræðum með Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Dagur Sigurðsson þjálfar Füchse Berlin sem vann með tólf marka mun 33-21. Alexander Petersson skoraði eitt mark í leiknum.

Füchse Berlin er með 31 stig í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar, fimm stigum á eftir Kiel nú þegar hlé verður gert á deildarkeppninni vegna EM í Serbíu.

Füchse Berlin var sterkari aðilinn frá upphafi og var fljótlega ljóst að allt stefndi í stórsigur liðsins. Átta mörkum munaði í hálfleik, 17-9 og Dagur Sigurðsson gat leyft sér að hvíla lykilmenn í seinni hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×