Formúla 1

NÝR TÍMI: McLaren frumsýnir beint á vefnum kl. 11:00

Formúlu 1 lið McLaren frumsýnir nýtt ökutæki kl. 11:00 í dag í beinni útsendingu á vefnum. Lewis Hamilton og Jenson Button svipta hulunni af bílnum í Berlín á sérstakri athöfn, en flest lið kusu að frumsýna bíla sína á Valencia brautinni í vikunni án mikils tilkostnaðar.

Bæði Hamilton og Button æfðu á Valencia brautinni í vikunni á 2010 bíl, en mæta með 2011 bílinn á æfingar á Jerez brautina í næstu viku. Bílarnir eru smíðaðir í höfuðstöðvum liðsins í Woking í Surrey í Bretlandi og verður fróðlegt að sjá hverju liðið kostar til í frumsýningunni. Þær hafa stundum verið tilkomumiklar hjá McLaren.

Með því að fara á www.mclaren.com má fylgjast beint með frumsýningu McLaren.

Sjá einnig ummæli Buttons um dekkaprófun McLaren í vikunni.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×