Geislun nær varla hingað 18. mars 2011 07:00 Fukushima Streymi geislavirk efni í sjó í lengri tíma frá kjarnorkuverinu í Fukushima gæti áhrifanna orðið hér vart eftir nokkur ár. NOrdicphotos/AFP
Langsótt er að geislun úr kjarnorkuverinu í Fukushima í Japan hafi áhrif á Íslandsmiðum, að mati Héðins Valdimarssonar, haffræðings hjá Hafrannsóknastofnuninni. Vísindamenn deila nú um það í Noregi hvort hætta sé á að geislavirkni berist frá Fukushima, en Mitin Hovlan, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskólann í Björgvin, uppástendur að afleiðingarnar kynnu að vera alvarlegar kæmi gat á kjarnaofninn og geislavirk efni flæddu í hafið. Næði geislavirkni á Íslandsmið og til Noregs þá yrði það með hafstraumum norður um Beringssund við Alaska, yfir í Norðuríshafið, suður með Grænlandsströndum og umhverfis Ísland til Noregs. „Ég hefði nú haldið, út frá því sem við sjáum í fyrstu, að þetta sé það langt í burtu að efnin myndu þynnast það mikið á leiðinni að geislavirkni myndi ekki finnast,“ segir Héðinn. „Þetta er langt og mikill sjór á leiðinni. Það er ljóst að þetta mun taka mörg ár,” segir Héðinn. „Auðvitað geta alltaf rokið upp úr öllu áhyggjur, en þetta er dálítið langt seilst.“- óká
Fréttir Jarðskjálfti í Japan Mest lesið „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Innlent Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Innlent Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Erlent Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Innlent Borgin verði ítrekað af viðburðum vegna gjaldtöku Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Fleiri fréttir Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Sjá meira