Erum við að fíflast með Evrópusambandið? Guðni Ágústsson skrifar 5. október 2011 06:00 Tryggvi Haraldsson stjórnmálafræðingur og að auki Evrópufræðingur sendir mér tóninn í blaðinu á fimmtudaginn var. Tryggvi beitir alkunnri aðferð í málsvörn sinni að snúa út úr minni grein og minni rökræðu um aðildarumsóknina að Evrópusambandinu. Svo hendir það hann sem verst er í rökræðum að sýna hroka í málflutningi og yfirlæti. Tryggvi er örugglega ekki í Samfylkingunni því hann segir að ESB sé ekkert himnaríki. Ísland er í afar dýru ferli sem kostar milljarða á milljarða ofan og að auki segja þeir sem heitast börðust fyrir þessu að nú horfi ískyggilega og að heiður Íslands sé í hættu. Þar eru þau að mér sýnist samherjar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Þorsteinn Pálsson og Eiríkur Bergmann í ESB-setrinu á Bifröst ásamt fleirum sem efast um að rétt sé að halda málinu til streitu við þessar aðstæður. Eiríkur Bergmann hlýtur að fá spurningar að utan hvort einhver alvara sé í þessu af hálfu okkar Íslendinga eins og málið er að þróast. Hann skammast sín sjálfsagt fyrir tvískinnunginn hjá ríkisstjórninni og óttast örlög málsins, það sé þegar fallið. Þorsteinn og Ingibjörg sammálaÉg hélt að fyrirtæki eða þjóð hellti sér aldrei í svona örlagaríkar viðræður nema að hafa mikið afl að baki sér og að rétt væri staðið að umsóknarferlinu. Nú vitna ég til efasemda Ingibjargar Sólrúnar og Þorsteins Pálssonar, annað þeirra var forsætisráðherra og hitt utanríkisráðherra. Hún segir að ríkisstjórnin geti ekki lokið samningagerðinni vegna ágreinings um markmið. Þorsteinn segir að VG hafi lagt stein í götu efnislegra viðræðna. Þau vita bæði þekkingar sinnar vegna að þjóðir umgangast ESB ekki með fíflaskap eða setja á svið sýndarmennsku samningagerð sem auðveldlega getur snúist upp í andhverfu sína. Dettur ESB-sinnum aldrei í hug að þeir í Brussel ræði um þá aðferð Íslendinga að fara fram á svona viðræður þegar annar flokkurinn í ríkisstjórninni ætlar að fella samninginn og tala gegn honum verði hann að veruleika en hinn sé heill í samningagerðinni. Ég virði bæði Þorstein og Ingibjörgu fyrir að vekja athygli á því að við erum að leika okkur að eldinum. Ekkert fyrirtæki, enginn maður gengur til samninga nema hann ætli að ná niðurstöðu. Hvað ætli okkar málglaði utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, segi við leiðtogana í Brussel berist þetta í tal? Jóhanna snýr fram, Steingrímur J. afturÉg var einn þeirra sem í upphafi bar þá virðingu fyrir ESB að ég hélt að sambandið myndi hafna aðildarviðræðum á þeim forsendum að ríkisstjórnin væri þverklofin í málinu. Samfylkingin einlæg í því að vilja inn en vinstri grænir ákveðnir í því fyrirfram að fella samninginn. Alfarið á móti verkefninu, þar fer burðarmaðurinn Steingrímur J. Sigfússon fremstur í flokki og segir það fullum fetum hvar sem er. Ég styð Steingrím í því en undrast undanlátsemi hans að fórna stærsta kosningamáli sínu í þessa vonlausu samningagerð sem allir ópólitískir prófessorar og Evrópufræðingar segja að snúist um aðlögun en ekki samninga eins og blessaðir þingmennirnir héldu 2009. Eitt sinn var prestur í íslenskri sveit sem hafði drukkið full mikið og snaraðist öfugt á bak hesti sínum, lítill strákur stökk til prestsins og sagði „prestur minn þú situr öfugt í hnakknum“. Presturinn svaraði af bragði: „Þegi þú strákur þú veist ekkert um hvort ég er að koma eða fara.“ Jóhanna snýr fram á Gamla-Rauð en Steingrímur J. snýr aftur að stertinum. Hvað segir Tryggvi um þessa aðferð þeirra, er hún vænleg til árangurs? Stjórnarandstöðuflokkarnir telja að umsóknina eigi að frysta allavega um sinn okkar vegna og ESB vegna. Erum við að ögra Evrópuþjóðunum?Hvernig halda Íslendingar að virðingu okkar verði háttað í Evrópusambandinu þegar aðlögunarsamningurinn liggur fyrir, þá fer Jóhanna, og Samfylkingin, glöð heim og biður þjóðina að segja já og samþykkja. Steingrímur J. og vinstri grænir, hinn aðilinn að samningsgerðinni fer heim og segir þjóðinni að fella samninginn og segja nei. Hvað segja þeir ESB-menn þá og öll þjóðríkin sem að sambandinu standa? Vex vegur okkar sem trúverðugrar þjóðar við svona háttalag eða hvað Tryggvi? Hvað segja Evrópufræðin um það eða siðfræðin? Gerðu svo ekki lítið úr okkur sem viljum stöðva leikinn, hann er dálítið grár og gæti sprungið á enni okkar sem þjóðar. Við sem þegar höfum mótað afstöðu gegn aðild gerum það á sterkum rökum um frelsi Íslands. Við teljum að betra sé að sækja fram utan ESB fyrir okkur sem þjóð í framtíðinni. Ég hefði talið að það hefði verið best fyrir okkur Íslendinga við þessar aðstæður að leggja viðræðurnar til hliðar, fresta þeim. „Skynsemin“ segir mér það, að vísu er það mín skynsemi byggð á rökum og minni þekkingaröflun um afleiðingar þess að hverfa inn í ESB. Mér er sagt að ESB hafi boðið Íslendingum að fresta viðræðum, því getur Össur Skarphéðinsson einn svarað. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðni Ágústsson Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar