Formúla 1

Alonso sló Vettel við á Spáni

Fernando Alonso fór mikinn á Valencia brautinni í dag.
Fernando Alonso fór mikinn á Valencia brautinni í dag. Mynd: Getty Images
Fernando Alonso á Ferrari náði besta tíma ökumanna á öðrum degi æfinga á Valencia brautinni á Spáni í dag, en Sebastian Vettel á Ferrari annar. Alonso varð fimmti fljótastur í gær, en  Vettel sneggstur. Þessir tveir kappar voru efstir í stigamótinu í fyrra.

Alonso og Vettel voru á 2011 bíl, en Paul di Resta sem var þriðji fljótastur ók á 2010 bíl,rétt eins og Lewis Hamilton sem varð fjórði. Robert Kubica á Renault varð fimmti, en hann ekur með útblásturskerfið á bílnum sem þykir nýstarleg hugmynd samkvæmt fréttum á autosport.com sem er á staðnum með sína menn.

Tímarnir í dag.



1. Alonso Ferrari 1m13.307s 108

2. Vettel Red Bull Renault 1m13.614s +0.307 43

3. Di Resta Force India Mercedes 1m13.844s +0.537 111 *

4. Hamilton McLaren Mercedes 1m14.353s +1.046 83 *

5. Kubica Renault 1m14.412s +1.105 104

6. Karthikeyan HRT Cosworth 1m14.472s +1.165 80 *

7. Rosberg Mercedes 1m14.645s +1.338 69

8. Glock Virgin Cosworth 1m15.408s +2.101 34 *

9. Barrichello Williams Cosworth 1m16.023s +2.716 51

10. Perez Sauber Ferrari 1m16.198s +2.891 42

11. Maldonado Williams Cosworth 1m16.266s +2.959 29

12. Buemi Toro Rosso Ferrari 1m16.359s +3.052 46

13. Alguersuari Toro Rosso Ferrari 1m16.474s +3.167 64

14. Webber Red Bull Renault 1m17.365s +4.058 17

15. Kovalainen Lotus Renault 1m20.649s +7.342 15

* 2010 bíll






Fleiri fréttir

Sjá meira


×