Formúla 1

Hamilton á sér leynda tónlistardrauma

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ökuþórinn og Formúlu 1-kappinn Lewis Hamilton er í enskum fjölmiðlum í dag sagður hafa varið frítíma sínum í að taka upp frumsamin lög í hljóðveri í Englandi.

Hamilton er einn besti ökuþór heimsins og varð heimsmeistari í Formúlu 1 árið 2008. Hann ekur fyrir McLaren sem kunnugt er.

Hann er sagður mikill tónlistarunnandi og því hafi hann leigt sér tíma í hljóðveri til að taka upp nokkur lög sem hann samdi sjálfur. Eru þau sögð í ætt við svokallaða R&B-tónlist.

„Hann hefur verið að taka upp mörg lög að undanförnu en hann vill þó fyrst og fremst einbeita sér að Formúlunni og því er ólíklegt að almenningur fái að heyra lögin í bráð," sagði heimildamaður enska götublaðsins The Sun.

„En hann hefur fengið jákvæð viðbrögð frá þeim fáu sem hafa fengið að hluta á lögin."

Kanadíski ökuþórinn Jacques Villeneuve gaf út plötuna Private Paradise árið 2007 en hún hlaut reyndar ekki neitt sérstakar viðtökur. Lag hans, Foolin' Around, má heyra með því að smella á hlekkinn hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×