Slasaðist við tannburstun og missir af leik gegn Barcelona Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. febrúar 2012 23:45 Eren Derdiyok er seinheppinn maður. Nordic Photos / Getty Images
Knattspyrnumenn missa stundum af mikilvægum leikjum eða heilum stórmótum í knattspyrnu af ótrúlegustu ástæðum og nú hefur Svisslendingurinn Eren Derdiyok, leikmaður Bayer Leverkusen, bæst í þann hóp. Derdiyok var að tannbursta sig heima hjá sér þegar hann rak sig í tannburstaglasið, sem var úr gleri, með þeim afleiðingum að það datt í gólfið og brotnaði. Derdiyok steig á eitt glerbrotið og þurfti að sjö spor til að sauma skurðinn saman. Af þeim afleiðingum verður hann frá keppni í minnst þrjár vikur og ljóst að hann missir af leik Leverkusen gegn Evrópumeisturum Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu þann 14. febrúar næstkomandi. Hann er einnig tæpur fyrir vináttulandsleik Sviss og Argentínu þann 29. febrúar. Þess má geta að Lionel Messi, besti knattspyrnumaður heims, leikur með bæði Barcelona og argentínska landsliðinu. Derdiyok fær vonandi tækifæri til að spila á sama velli og Messi þegar að Leverkusen og Barcelona mætast í síðari viðureign liðanna í Meistaradeildinni þann 7. mars.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Enski boltinn „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Svakalegur derby-dagur fyrir Tómas Bent og félaga Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Sjá meira